Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 56

Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 56
FRETTASKYRING GJflLDÞROT ÍSVflR / Gjaldþrot Isvár hefur verið á milli tannanna á fólki, en talið er að heildarskuldir jyrirtœkisins hafi numið allt að 200 milljónum þegarþað fór í þrot. Deilt er um hvað haf farið úrskeiðis. En fyrir aðeins rúmu ári, haustið 2001, var Isvá verðmetið á um 280 milljónir króna. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson W Islenska vátryggingamiðlunin ehf. var stofnuð af Kristni Sigurðssyni vátryggingamiðlara í árslok 1996 þegar ný lög um miðlun vátrygginga höfðu tekið gildi og miðlaði einkum Sun Life söfnunartryggingum til að byrja með. Skömmu síðar var stofnuð önnur vátryggingamiðlun, Fjárvernd ehf., og varð hún einn aðal samkeppnisaðili íslensku vátryggingamiðlunar- innar. Fyrirtækið fékk góðan meðbyr strax frá upphafi. Fyrir- tækið miðlaði einnig sparnaði og tryggingum frá Friends Provident í Englandi og fór ört stækkandi. Árið 1999 var Islenska vátryggingamiðlunin orðin stærsta vátrygginga- miðlunin hér á landi. Nokkrir af hluthöfunum höfðu áhuga á að kaupa keppinautinn Fjárvernd og sameina fyrirtækin í ísvá hf. Stofnandi Islensku vátryggingamiðlunarinnar var andvígur þessari hugmynd. Hann var því keyptur út úr fyrirtækinu og samruninn varð að veruleika. Starfsmönnum hins sameinaða fyrirtækis var gefinn kostur á að auka hlut sinn í sameinuðu fyrirtæki og ijárfestar komu inn. Á þessum tíma er talið að gengið hafi verið um 30 og hlutaféð 4 milljónir króna. Síðar fór gengið í allt að 60. Þess má geta að haustið 2001 var fyrirtækið verðmetið á 280 milljónir króna. Árið 2001 var metár ísvá opnaði aðstöðu í London og ákvað að ryðja sér til rúms í miðlun á starfsábyrgðatryggingum, hrossatryggingum, flugvélatryggingum og farmtryggingum. Jón Kristinn Snæhólm sijórnmálafræðingur kom snemma til starfa hjá fyrirtækinu, eignaðist fljótlega 5 prósenta hlut og jók síðan við sig hlutinn. Hann varð stjórnarformaður fyrirtækis- ins árið 1999 og gegndi þeirri stöðu í þijú ár eða fram í apríl 2002. Fyrirtækið jókst verulega í veltu og mannskap. Árið 2000 var velta fyrirtækisins tæplega 200 milljónir króna og smávegis hagnaður af rekstrinum. Rekstrarárið 2001 var veltan tæpar 300 milljónir króna og nam tapið tæpum 60 milljónum króna þrátt fyrir 40 prósenta söluaukningu. Fór að síga á ógæfuhlið- ina síðustu mánuði ársins 2001 og árið 2002. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota í haust. „Við lögðum ekki megináherslu á hagnað fyrstu árin heldur vöruþróun og vildum við ná afger- andi stöðu á markaðnum. Árið 2001 var metár og þá var gríðar- leg aukning í sölu en það var jafnframt þá sem byijaði að halla undan fæti,“ segir hann. Um 90 starfsmenn voru hjá fyrirtækinu þegar mest lét, þar af um 70 tryggingamiðlarar. Fyrirtækið hafði hvetjandi starfs- mannastefnu og greiddi vel sínu fólki og bauð upp á fræðslu og Með auknum umsvifum fjölgaði starfsmönnum og voru um 80 alls þegar mest lét. Fyrirtœkið flutti frá Suðurlandsbraut 4a... ...í stærra húsnœði á götuhæðinni að Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík. Kostnaðurinn við flutninginn nam 15 milljónum króna og húsaleigan hœkkaði verulega. 56
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.