Frjáls verslun - 01.10.2002, Síða 62
getu fólks. Ég geri mér hins vegar vonir um að sjá fram á bjart-
ari tíð með lækkandi vöxtum. Mín reynsla er sú að það hvernig
jólaverslunin fer af stað endurspegli ástandið í samfélaginu.
Helstu einkenni verslunarinnar núna eru að hún færist nær jól-
um og einnig að nóg er til af öllum vörum, fólk þarf því ekki að
sýna sömu fyrirhyggju við innkaupin og áður. Það er áberandi
hve verslunin er að færast í stórum stíl yfir á helgarnar. Sú þró-
un hefur einnig verið áberandi erlendis.“
Jóhannes segir ennfremur að verslunarferðir fólks til útlanda
séu að mestu að leggjast af. Það er ánægjulegt að fólk notar hefð-
bundnar haustferðir öðruvísi, það er að segja sér til upplyftingar
en ekki til þess að versla. „Ein af meginástæðum þess er tilkoma
stórra erlendra verslanakeðja í Smáralind. Fólk sótti áður mikið
í verslanir eins og Debenhams og Zöru í verslunarferðum er-
lendis en nú eru þær tíl staðar á íslandi. Ég tel fullvíst að ef virð-
isaukaskattur yrði felldur niður af barnafatnaði, myndu verslun-
arferðir tíl útlanda nánast leggjast af. Ég er mjög ánægður með
þessa þróun - að sjá íslenskar verslanir vera algerlega sam-
keppnisfærar við það sem best gerist í verslun erlendis," segir
Jóhannes að lokum. SH
Jóhannes Jónsson í Bónus: „Ég var lengi í verslunarrekstri í miðbœnum
og man vel þá tib þegar miðbœrinn iðaði aflífi. “
Jóhannes Jónsson í Bónus:
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ:
Aukning í
tilboðum
Smáralindin
að styrkjast
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, er á þeirri skoðun
að mikil samkeppni ríki á milli Smáralindar, Kringlu og mið-
bæjarins. „Smáralindin hefur verið að styrkjast á þessu ári,
meðal annars með tilkomu nýrra verslana. Kringlan virðist
einnig halda sínu og gamli miðbærinn lifir enn þá, þrátt fyrir það
að hann sé á undanhaldi. Undanhaldið hjá miðbænum er hins
vegar eðlilegt því það hlýtur eitthvað að bresta í öllu þessu fram-
boði á markaðinum," segir Jóhannes.
„Veðurfar hefur að vísu verið hagstætt Laugaveginum til
þessa í ár, en það er ljóst að veður hefur mikil áhrif á verslun í
miðbænum og gerir honum oft erfitt um vik. Ég er á þeirri
skoðun að það hafi verið bankastofnanir sem eyðilögðu gamla
miðbæinn á sínum tíma. Það hefði verið hægt að bjarga gamla
miðbæjarkjarnanum fyrir 20 árum ef Landsbanka og Búnaðar-
banka hefði verið breytt í verslunarmiðstöðvar."
Bjartari tíð framundan „Greinilegur samdráttur er í samfélag-
inu frá því í fyrra. Opinberar tölur sega okkur að skuldir heimil-
anna séu sífellt að aukast og það hlýtur að koma niður á kaup-
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka
verslunar og þjónustu, segir það augljóst að samkeppni er
viðvarandi á milli Smáralindar, Kringlunnar og Iuugavegar.
,Árangur þeirra ræðst af ýmsu. Má þar t.d. nefna að veður síð-
ustu tvær vikur eða svo fyrir jólin hefur áhrif á ferðir fólks í
verslanir á Iuugavegi og mikilvægt er fyrir það svæði að engar
truflanir séu í umferð þennan tíma,“ segir Sigurður.
„Laugavegurinn hefur upp á margt að bjóða, en er við-
kvæmari fyrir ytri aðstæðum ef svo má segja en verslunar-
miðstöðvarnar. A móti kemur þó að mikill ijöldi alls konar veit-
ingastaða getur lífgað upp á verslunarferð á Imugaveginn. Það er
ánægjulegt að sjá að öflugri samstaða er e.t.v. nú á milli rekstrar-
aðila á Imugaveginum en stundum áður.
Kringlan er afar sterkur segull sem nýtur eðlilega hylli kaup-
enda sem geta lagt bílum sínum frítt ótímabundið og gert sín
innkaup undir þaki og notið þjónustu veitingastaða. Margar og
fjölbreyttar verslanir bjóða flest sem nejhendur í jólainnkaupa-
ferð þarfnast. Smáralind er nýr og spennandi valkostur með
nægum ókeypis bílastæðum og miklu plássi. Þar Jjölgar sífellt
verslunum, jafnt einstökum sem alþjóðlegum, sem sumar eru
ekki með aðra útsölustaði og jafnframt er þar boðið upp á veit-
ingastaði, kvikmyndahús o.fl. Samkeppnin á milli þessara
þriggja helstu verslunarstaða verður án efa mikil og skemmtileg
enda felst hún m.a. í skemmtanahaldi, skreytingum o.þ.h.“
Sigurður telur kaupmenn vissulega finna fyrir samdrættí frá
því í fyrra. „Þó að sjálfsögðu mismunandi eftir greinum. Ljóst er
að einkaneyslan er minni og skuldir heimilanna hafa aukist.
62