Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 76
Starjsmenn Nevada Bob. j Verslun med golfvörurfyrirjól hejur margfaldast síbustu ár og nú ersvo komið að desember er með stærstu mánuðum
ársins. “
f/öjfimsslunin «. \ eixuhi Œoó:
Kvenna- og barnavörur
seljast vel fyrir jólin
Golfverslun Nevada Bob er stærsta
sérverslun með golfvörur á íslandi.
Eftir ísak Örn Sigurðsson Mynd: Geir Ólafsson
Golfverslun Nevada Bob er stærsta sérverslun með golf-
vörur á íslandi. ,Áhugi almennings á golfi hefur vaxið
mikið á síðustu árum og höfum við ekki farið varhluta af
því. Við hjá Nevada Bob höfum mikið og gott vöruúrval og
leggjum áherslu á góða og persónulega þjónustu. Starfsmenn
okkar stunda íþróttina og þekkja vel þarfir kylfinga," segir
Hans Henttinen framkvæmdastjóri Nevada Bob.
„Verslun með golfvörur fyrir jól hefur margfaldast síðustu
ár og nú er svo komið að desember er með stærstu mánuðum
ársins. Við höfum lagt áhersu á að vera með mjög góða lager-
stöðu allt árið, ekki síst fyrir jólin. Við viljum að viðskiptavinir
okkar geti gengið að miklu vöruúrvali allt árið. Það er ein-
kennilegt með jólaverslunina að þetta er sá tími árs sem sala á
golfsettum fyrir konur er jafnmikil og salan á karlasettum.
Karlarnir eru duglegir að kaupa golfsett og fatnað handa kon-
76
unum fyrir jólin. Það má í raun segja það sama um konurnar.
Þær eru að versla mikið handa körlunum og eru sérstaklega
duglegar að fata þá upp.“
Öðruvísi viðskiptavinir í desember „Við höfum tekið eftir því
að við erum að fá öðruvísi hóp viðskiptavina til okkar fyrir jólin.
Stór hluti þeirra sem koma fyrir jól er fólk sem stundar ekki
golf og hefur takmarkaða þekkingu á íþróttinni. Þetta eru
makar, börn eða foreldrar kylfinga og þurfa okkar aðstoð við
að velja jólagjöfina. Þar sem við erum að fá þúsundir heim-
sókna í verslun okkar árlega þá eru starfsmenn okkar farnir að
þekkja marga kylfinga. Það er því ekki óalgengt að starfsmenn
okkar þekki kyffinginn sem á að fá gjöfina og eigi því auðveld-
ara með að ráðleggja við vöruval."
vel birgir í öllum vöruflokkum „Salan í desember einkennist
af óvenjumikilli sölu á kvenna- og barnavörum. Annars er mjög
misjafnt frá ári til árs hvaða vörur eru vinsælastar fyrir jólin.
Eitt árið eru allir að kaupa golfsett en næsta ár eru það regn-
gallarnir sem seljast mest. Við reynum því að vera vel birgir í
öllum vöruflokkum til þess að viðskiptavinir okkar komi ekki
að tómum kofanum í Nevada Bob,“ segir Hans. B3