Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 86
SflGflN BflK VID HERFERÐINfl
Sluðmenn gefa
bankatón í annað sinn
Lag Stuðmanna „Með allt á hreinu “ er heitið á auglýsingaherferð Islandsbanka og þungamiðjan í
/ /
henni. Arið 1985 sótti Iðnaðarbankinn, forveri Islandsbanka, í smiðju Stuðmanna og bjó til
herferðina „Með á nótunum“sem sló ígegn á þeim tíma.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
essi herferð á upptök sín í hugmyndinni um að sameina
allt markaðsstarf gagnvart einstaklingum undir einu
þema,“ segir Sverrir Björnsson, hönnuður hjá auglýs-
ingastofu Hvíta hússins, en stofan sá um gerð auglýsingaher-
ferðarinnar Með allt á hreinu sem íslandsbanki hefur keyrt
undanfarna mánuði. „Fólk er ekki mjög meðvitað um einstaka
þjónustuþætti en í stað þess að kynna þá hver fýrir sig fórum
við þá leiðina að búa til þema samhliða endurskipulagningu á
sölustarfi bankans. Smátt og smátt þróaðist hugmyndin yfir í
,ýUlt á hreinu“ sem vísar til viðskiptavinarins og þess að líta má
á það að hafa allt á hreinu í ijármálum er ein af undirstöðum
þess að lifa góðu lífi. Fjárhagslegt öryggi er undirstaða þess að
geta notið lífsins í rikum mæli. „Þetta er spurning um lífsstíl,“
segir Sverrir. „Eftirsóknarvert ástand. ,ýUlt á hreinu" vísar ekki
í að eiga fullt af peningum, heldur að hafa yfirsýn yfir sín mál,
vita hvað maður á og hvað maður má: Vera „on top of things".
Myndir: Geir Ólafsson og fleiri.
Að njóta þess að vita að fjármálin eru í góðu lagi. Þjónusta eins
og greiðsludreifing, netbanki, fiármálaráðgjöf og Valþjónusta
falla fullkomlega inn í þessa hugsun.
Týnt Stuðmannalag Þemað „Með allt á hreinu" er í huga ís-
lendinga órjúfanlega tengt Stuðmönnum og hinni frábæru kvik-
mynd: Með allt á hreinu. Ég vissi af því að Stuðmenn höfðu á
sínum tíma hljóðritað fjölda laga fyrir þessa kvikmynd í Los
Angeles, lög sem einhverra hluta vegna höfðu síðan ekki ratað
í myndina sökum síðbúinna sjóflutninga á þungum 24 rása seg-
ulbandsspólum. í þessu lagasafni leyndist sjálft titillag myndar-
innar sem aldrei hafði verið notað. „Það lá þvi beint við að taka
upp símann og ræða við Stuðmenn um hvort leiðir gætu legið
saman,“ segir Sverrir. „Og viti menn, týnda Stuðmannalagið -
Með allt á hreinu - reyndist eftir eilitla endurútsetningu vera
hið glæsilegasata lag og einkar vel við hæfi. Þar sem Stuðmenn
Stuðmenn. Fyrir rúmum sautján árum, árið 1985, sömdu þeir
„Með á nótunum"fyrir Iðnaðarbankann, sem var einn fjögurra
forvera Islandsbanka.
Sverrir Björnsson, hönnuður hjá
auglýsingastofu Hvíta hússins: „Þessi
herferð á uþþtök sín í hugmyndinni
um að sameina allt markaðsstarf
gagnvart einstaklingum undir einu
þema. “
Magnús Pálsson, forstöðumaður Þró-
unar hjá Sþarisjóði Hafnarfjarðar,
varfyrir sautján árum í eldlínu mark-
aðsmála hjá Iðnaðarbankanum og
einn þeirra sem fékk Stuðmenn þá til
liðs við bankann.
86