Frjáls verslun - 01.10.2002, Síða 95
LIFEYRISSPARNAÐUR
„Rétt er að fram komi að við lögskilnað hjóna
eru lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum ekki talin
sameiginleg hjúskapareign þeirra og koma
því ekki til skipta við lögskilnað."
fullkomlega valkvætt
ákvæði, sem þýðir að
bæði hjónin verða að
samþykkja skiptinguna.
I samtryggingarlífeyris-
sjóðum ávinna menn
sér ekki einhverja inn-
eign eða séreign sem
erfist, heldur ávinna
sjóðfélagar sér ákveðin
lífeyrisréttindi. Þau geta
verið með jimsum
hætti, t.d. fær öryrki
oftast langtum meira
greitt úr lífeyrissjóði í
formi örorkulífeyris
heldur en hann hefur
greitt til hans. Sama er
að segja með eftirlifandi
maka og börn, ef sjóðfélag-
inn fellur frá ungur. Lifeyris-
sjóðirnir eru þvi í aðra röndina
ákaflega hagstæð trygging fyrir
sjóðfélagann, vegna orkutaps og
andláts, svo ekki sé talað um greiðslu
ellilífeyris til æviloka.“
Ekki sameiginleg hjúskapareign „Rétt
er að fram komi að við lögskilnað hjóna
eru lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum ekki
talin sameiginleg hjúskapareign þeirra og
koma því ekki til skipta við slit á fjárfélagi
hjónanna. Lífeyrisréttíndin eru því talin per-
sónuleg eign sjóðfélagans sem ekki er hægt að
skipta við skilnað nema með samþykki beggja
aðila, samanber það sem áður hefur verið greint
frá. Fordæmi er þó fyrir því að dómstólar hafi
tekið tillit til lífeyrisréttindanna við slit hjúskapar,
ef annar aðilinn hefur áunnið sér mjög lítil lífeyr-
isréttíndi vegna Ijarveru frá almennum vinnu-
markaði, sem skýrist af barnauppeldi og heimilis-
störfum," segir Hrafn.S!!
Skattaafsláttur
vegna hlutabréfakaupa:
61.664 kr. fyrir hjón
Hámarksskattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa eru 30.832 kr.
fyrir einstakling og 61.664 kr. fyrir hjón.
Þetta er þannig hugsað að einstaklingur kaupir hlutabréf fyrir
133.333 kr. Afslátturinn miðast við 60% þeirrar fjárhæðar, eða
80 þúsund krónur. Af þeirri upphæð reiknast svo sjálfur skattaaf-
slátturinn (m.v. 38,54% skatt í staðgreiðslul sem gerir 30.832
krónur.
Skattaafsláttur
vegna viðbótarlífeyrissparnaðar:
4% + 4% = 8%
Skattaafsláttur einstaklinga vegna iðgjaldsgreiðslna í lífeyrissjóð er
allt að 8%. Launþegar eru skyldugir til að greiða 4% af launum
sínum í lífeyrissjóð. Mótframlag atvinnurekandans er 6%. Laun-
þegar eiga siðan kost á að leggja 4% til viðbótar í lífeyrissjóð (við-
bótarlífeyrissparnaður) samhliða því að ríki og launagreiðandi koma
með mótframlag upp á 2,4%.
Sé um viðbótarlífeyrissparnað að ræða á launþeginn kost á að fá
allt sitt eigið framlag, þ.e. 8% (4%+4%), frádráttarbært frá skatti.
Dæmi: Einstaklingur með 3,6 milljónir kr. í árstekjur fær því 288
þús. í skattaafslátt vegna iðgjaldsgreiðslna sinna í lífeyrissjóð.
s Saíru