Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 100

Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 100
Gísli Jafetsson, markaðsstjóri sparisjóðanna. Sparisjóðurinn býður nokkrar leiðir til ávöxtunar viðbótarlífeyrissparnaðar: Lífsval I er sérstakur lífeyrisreikningur í Sparisjóðnum. Reikningurinn ber nú hæstu verðtryggðu vexti sem Spari- sjóðurinn býður upp á eða 6,60%. Þessi reikningur hentar vel varfærnum spariijáreigendum sem leggja mikla áherslu á öryggi. Lífeyrissreikningur Sparisjóðins hefur borið einna hæstu vexti sambærilegra reikninga frá upphafi. Hægt er að fylgjast með innborgunum á reikninginn í Heimabanka Spari- sjóðsins. Lífsval II er ávaxtað í séreignardeild Frjálsa lífeyrissjóðsins. Fjárfestingarstefnan er byggð á langtímamarkmiðum og því er hluti af eignum sjóðsins í hlutabréfum og erlendum verð- bréfum. Fjárfestingar eru innan þeirra marka sem sett eru í lögum um starfsemi lífeyrissjóða. Lífsval III er ávaxtað í séreignarsjóði Kaupþings. Líkt og í Lífsvali II er hægt að velja að fylgja sérstakri ævileið, en þá flyst sparnaðurinn milli leiða eftir aldri. Lífeyrissparnaður er sparnaður sem ætlaður er til að nota eftir að starfsævinni lýkur. Með hækkandi meðalaldri, bættri heilsu og styttri starfsævi er ljóst að ijárhagur á eftirlauna- árunum skiptir fólk sífellt meira máli. Á þessu æviskeiði hefur fólk loks tíma til að láta verða af ýmsu sem það hefur dreymt Lífeyrissparnaður Sparisjóðsins I niðurstöðum könnunar, sem birt var fyrir nokkrum vikum, kom fram að fjölmargir laun- pegar eiga eftir að ganga frá samningi um sinn viðbótarlífeyrissparnað. Eftir Isak Örn Sigurðsson W Iniðurstöðum könnunar, sem birt var fyrir nokkrum vikum, kom fram að ijölmargir launþegar eiga eftir að ganga frá samningi um sinn viðbótarlífeyrissparnað. Flestir telja þessi mál í góðu lagi en hafa ekki gert sér grein fyrir að enn má auka við sparnaðinn, því að nú geta launþegar lagt allt að 4% af tekjum fyrir skatta í séreignarlífeyrissparnað," segir Gísli Jafetsson, markaðsstjóri sparisjóðanna. „Mörgum kann að þykja þessi mál flókin og hafa þess vegna ekki gengið frá sínum málum, enn aðrir og þá yngra fólk ætlar að huga að þessum málum síðar. Því þykir e.t.v. of snemmt að huga að lífeyrismálum sínum skömmu eftir að námi lýkur og það rétt komið á vinnumarkaðinn. Fólk hugsar með sér: Það er langt í að ég þurfi á lífeyri að halda, ég get alltaf byrjað - og er það rétt. En með þennan sparnað eins og annan gildir, að því fyrr sem þú byrjar eftir því verður höfuðstóllinn hærri. Þjónustufulltrúar í Sparisjóðnum finna út þá leið sem hent- ar hverjum og einum. Það er staðreynd að viðbótarlífeyrissparnaður er ein besta og ódýrasta leiðin til að búa í haginn fyrir framtíð Jjölskyld- unnar. Slíkur sparnaður erfist, auk þess að vera gott bakland ef áföll eins og örorka dynja yfir,“ segir Gísli. um alla ævi. Ferðalög, áhugamál og námskeið af ýmsu tagi eru allt möguleikar sem heilla. Langtímasparnaður gerir einstak- lingum kleift að eiga áhyggjulaus efri ár og getur gert eftir- launaárin að afar ánægjulegum tíma. 2,2%, 4,4% eða meira? Eins og flestir vita geta einstaklingar nú lagt allt að 4% af tekjum fyrir skatta í séreignarlífeyris- sparnað. Mótframlag frá ríki í formi lækkunar tryggingagjalds er að lágmarki 1/10 af viðbótarframlagi launþega. Heildar- framlag einstaklings í séreignarlífeyrissjóði nemur þá alls 4,4% af launum. Jafnframt hafa nokkur stéttarfélög þegar samið um sérstakt mótframlag frá launagreiðanda. Rétt er að taka fram að sparnaður hækkar ekki sjálfkrafa úr 2% í 4% hjá þeim laun- þegum sem þegar hafa gert samning um 2% viðbótarlífeyris- sparnað. Það eina sem launþegi þarf að gera til að hækka sparnaðarfjárhæðina er að skrifa undir nýjan samning og launagreiðandi og Sparisjóðurinn sjá um restina. Af hverju viðbótarlífeyrissparnaður? Hver er þinn ávinningur að velja Lífsval - Lífeyrissparnað Sparisjóðsins? Þinn hagnaður Þú hlýtur vaxtaávinning með því að leggja fyrir í lífeyrissparnað. Þegar árin færast yfir getur alltaf eitthvað óvænt komið upp á og því er nauðsynlegt að eiga varasjóð til að grípa í. Þannig eykur þú öryggi þitt og þægindi á efri árum. Þú nýtur þess að hafa meira ráðstöfunarfé í framtíðinni. Lífeyrissparnaður er fjölskyldumál Reiknaðu út þinn sparnað á www.spar.is getur þú reiknað út mögulegan lífeyrissparnað miðað við þínar forsendur. tíl 100
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.