Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 102

Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 102
IVINUMFJOLLUN SIGMARS B. Vín er vinsæl Vín er ein vinsælasta jólagjöfin í Bretlandi. Pylsur, paté, ostar oggæsalifur auk / léttvíns eru vinsælar jólagjafir í Frakklandi, á Italíu og í Þýskalandi, enda, hvað á ab gefa fiólki sem á svo að segja allt? Eftír Sigmar B. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson Hefur þú fengið trefil í jólagjöf með myndum af bleikum filum, rakspíra með appelsínu- lykt eða leslampa með rafhlöðu? í stuttu máli eitthvert dót sem þú aldrei notar? Að gefa jólagjöf af þessu tagi er eiginlega peningasóun. A hitt ber að líta að það er ekki auðvelt að gefa fólki jólagjafir sem á allt ef svo má segja. Já, það er vandi að finna réttu jólagjöfina. Vissulega stendur bókin alltaf iyrir sínu, góð bók er gulli betri, segir einhvers staðar. Hugmynd að góðri jólagjöf er þó flaska af góðu víni. Vín er einkar heppileg gjöf til fólks á aldrinum 30 ára og upp úr, en fólk á þessum aldri á orðið flesta hluti og hefur mjög ákveðinn smekk. Ódýrt en gott Vissulega eru til í verslunum ATVR ljómandi vín á hagstæðu verði, ef hægt er þá að tala um hagstætt verð á víni hér á Is- landi. Hér er átt við vín sem tilvalið er að gefa í jólagjöf íyrir þá sem hyggjast gefa gjöf sem kosta á undir 2.000 krónum, nú eða fyrir þá sem vilja gefa tvær eða þijár flöskur. Dæmi um slíkt vin er Villa Mt. Edna Zinfandel á 1.790 krónur en þetta vin kemur frá Kali- forníu. Þetta er einkar ljúffengt vín og þægi- legt, bragðið er ferskt ávaxtabragð með eftir- bragði af súkkulaði. Þetta er tilvalið vín fyrir þá sem ekki hafa mikla þekkingu á víni. Annað heppilegt vin á góðu verði er ástr- alska vínið Hardy’s Nottage Hill Cabernet Shiraz á 1.390 krónur. Það er góð meðallyfting í þessu víni, þægilegt berja- og krydd- bragð. Agæt vín með kalkúni og jafnvel rjúpum fyrir þá sem ekki vilja of kröftugt vín. Af góðum hvitvínstegundum jafnast fátt á við gottfranskt Chablis en Chablis frá Joseph Drouhin erugóð kaup. Vínið heitir Domaine de Vaudon og kostar 1.360 krónur. Þetta er þægilegt vín, rétt aðeins þurrt en með góðri fyllingu og af því er ferskt ávaxtabragð þar sem mest ber á eplabragðinu. Matur og vín Matur og vín eru vinsælar jólagjaf- ir í Evrópu. Vín er ein vinsælasta jólagjöfin í Bret- landi. Ymiss konar pylsur, paté, ostar og gæsalifur, auk léttvins, eru vinsælar jólagjafir í Frakklandi, á Italíu, í Þýskalandi og raunar víðar í Evrópu. I þessu tilviki má því eiginlega tala um nytsamar jóla- gjafir. Er það ekki einmitt málið að gefa nytsamar jólagjafir? Vissulega er vín kannski ekki heppileg gjöf fyrir þá sem lítinn eða engan áhuga hafa á léttvíni en það hafa nú held ég flestir núorð- ið. Ef gefa á vín í jólagjöf er það þumalfingurs- regla að betra er að gefa eina flösku af góðu víni fremur en tvær til þijár af ódýrari gerð- inni. Stóru llöfnin Fyrir þá sem vilja vera rausnarlegri í ár skal bent á hallarvín frá Bordeaux. Þar er svo sannarlega hægt að mæla með Chateau Pichon-Longueville-Baron á 6.820 krónur. Þetta er glæsilegt vín, flókið og þokkafullt. Gott vín með ijúpunum á næsta ári. Allgott vín, en töluvert ódýrara og ljómandi með rjúpunum, er Gaja Sito Moresco á 2.480 krónur. Þetta er kröft- ugt vín með jarðarbragði og ljúfu eftirbragði af kryddi, svörtum pipar og jafnvel negul og koríander. Hvað varðar gott hvítvfn förum við aftur til Frakklands og til Bourgogne. Clos des Mouches á 4.890 krónur er án efa eitt yndislegasta hvítvínið í Ríkinu í dag. Fyrir unnendur góðs víns er varla hægt að hugsa sér betri jólagjöf. Ég myndi vilja kalla þetta góða vin jólagjöfina í ár. Baron Pkilippe de Rotksckild Vign erons du 5ieur BAron’Arques -1998- VIN DE PAYS DE LA HAUTE VALLÉE DE L’AUDE MIS fN BOIfTEtLlE FAI BAROH'ABOUES, NÉGDCIANTS A GARDIE-AUBE-FRANCE-PRODUCE OF FRANCE Baron’ Arques er þressað úr þrúgunum Merlot, Grenache, Cabernet Sauvignon, Syrah, Cabernet Franc ogMalbec. 102
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.