Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 103
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum víntegundum til
jólagjafa:
Hvítvín:
Domain de Vaudon Chablis á 1.360 krónur
Clos des Mouches á 4.890 krónur
Tokay Pinot Gris á 2.050 krónur
Rauðvín:
Villa Mt. Edna Zinfandel á 1.790 krónur
Hardy's Nottage Hill Cabernet Shiraz á 1.390 krónur
Chateau Pichon-Longueville bakon á 6.820 krónur
Gaja Sito Moresco á 2.480 krónur
Baron' Arques á 3.350 krónur
Sú spurning sem alltaf skýtur upp kollinum fyrir hver einustu jól er hvaða vín sé best að
drekka með hangiketinu. Svarið er alltaf það sama: Bjór. En fyrir þá sem endilega vilja hafa vín
með jólahangiketinu skal bent á fllsace vínið Dopf au Moulin Tokay Pinot Gris á 2.050 krónur.
að hugsa sér betri jólagjöf. Ég myndi vilja kalla þetta góða vín
jólagjöfina í ár.
Baron’ Arques Þetta er heitið á nýju víni sem var að koma á sér-
lista ÁTVR Þetta er franskt vín eins og nafnið bendir til. Það
kemur frá Suður-Frakklandi eða nánar tiltekið Languedoc. Vín
þetta er framleitt af tveimur fyrirtækjum. Fyrst skal frægan telja
Baron Philippe de Rothschild sem er einn virtasti vínframleið-
andi heims. Hitt fyrirtækið er samvinnufyrirtækið Sieur
d’Tfrques. Vín þetta er pressað úr þrúgunum Merlof Grenache,
Cabernet Sauvignon, Syrah, Cabernet Franc og Malbec. Þetta er
flókin blanda en Merlot þrúgan hefur þó yfirhöndina. Þetta er
bragðmikið vín með góða fyllingu og af þvi er beijabragð, og þá
eiginlega berjasultubragð, með ríku kirsuberja- og sólberja-
bragði. Eftirbragðið er einkar ljúft en í því vottar fyrir keim af
kryddjurtum eins og timian. Ég bragðaði þetta vin
í fyrsta sinn á vínkynningunni í Bordeaux árið
2001. Það sem vakti athygli mína á þessu víni
var hversu vel það er byggt, ef svo má að orði
komast. Það hefur sama stíl og einkenni og
gott hallarvín frá Bordeaux. Það hefur
einnig léttleika og þokka suður-frönsku vin-
anna. Margir vínfræðingar telja að nýjar vín-
tegundir fr á Suður-Frakklandi séu best varð-
veitta leyndarmál vínheimsins í dag og
þetta athyglisverða vín mun án efa vekja
verulega athygli. Þetta er mjög áhugavert
vín fyrir þá sem safna víntegundum og
einnig þá sem eiga nokkrar flöskur af
góðu víni heima í skáp. Baron’
Arques passar ágætlega með villi-
bráð og frábærlega með lamba-
kjöti. Þetta vin er tilvalin jólagjöf
þar sem það er nýtt á markaðn-
um en mun örugglega, eins og
áður sagði, vekja verulega athygli
á næstu árum. Flaskan kostar 3.350 krónur
ásérlistaÁTVR.
Vín og hangikjðt Sú spurning sem alltaf
skýtur upp kollinum fyrir hver einustu jól er
hvaða vín sé best að drekka með hangi-
ketinu. Svarið er alltaf það sama: Bjór. En
fyrir þá sem endilega vilja hafa vin með jóla-
hangiketinu skal bent á Alsace vínið Dopf au
Moulin Tokay Pinot Gris á 2.050 krónur. Af
þessu þægilega hvítvíni er léttkryddað
hunangs- og ávaxtabragð sem er gott mót-
vægi við reyk- og saltbragðið af hangiketinu.
Satt best að segja passar þetta TUsace vín ein-
staklega vel með hangiketi.
Sólargeisli í tlösku Léttvín er stundum kall-
að sólargeisli í flösku. Ekki veitir af að lýsa upp
hugann í skammdeginu og þá einkum og sér í
lagi um jólin. „Vínið lýsir upp dimma afkima
sálarinnar", sagði franskur heimspekingur
einu sinni. Við þurfum einmitt öll á því að
halda um jólin að lýsa upp dimma afkima
sálarinnar. SIi
VINUMFJOLLUN SIGMflRS B. I
jólagjöf
Efgefa á vín í jólagjöfer
það þumalfingursregla
að betra er að gefa eina
flösku af góðu víni
fremur en tvær til þrjár
afódýrari gerðinni.
103