Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 29
NÆRMYND BflLDUR GUDNflSON
KA og þá ekki síst eftir að börnin tóku við boltanum en Baldur
og kona hans, Arna Alfreðsdóttir meinatæknir, eiga þijú börn
á aldrinum 3-15 ára.
Átti Vídeóleigu Baldur hefur alla tíð verið ákaflega sjálf-
stæður og viljað standa á eigin fótum. Hann fór snemma að
heiman, sennilega um 16-17 ára aldur, leigði sér íbúð og vann
mikið. Hann vann í Iðnaðarbankanum á Akureyri með skóla og
fyrst eftir stúdentspróf og starfrækti um leið vídeóleigu í eitt ár
ásamt Kristjáni Kristjánssyni, síðar deildarstjóra SIF í Frakk-
landi. „Við vorum engir námshestar en útskrifuðumst með
fínar einkunnir. Við höfðum í öðru að snúast en að liggja í
skólabókunum. Við vorum farnir að reka fyrirtæki og unnum
saman í Iðnaðarbankanum á daginn og í vídeóleigunni á
kvöldin," segir Kristján. „Baldur fór síðan snemma að vinna
fyrir Samskip og vann þar lengi. Ég held að hann hafi þroskast
mjög hratt í starfi sínu hjá fyrirtækinu."
Baldur starfaði hjá Samskipum trá 1987, bæði hérlendis og
erlendis, en lét af störfúm árið 2000 er hann keypti Sjöfn hf. á
Akureyri og gerðist framkvæmdastjóri þess. „Það hefur alla tíð
verið rosalegur kraftur í honum og allt sem hann hefur snert
hefur orðið að gulli. Hann er snillingur í að sjá tækifæri. Hann
hefur þann hæfileika að sjá hvernig hægt er að skera niður
kostnað og bæta reksturinn og svo er hann mjög drífandi. Þeir
sem vinna með honum eru yfirleitt fljótt komnir á hans línu
enda sést það á kraftinum í hópnum sem vinnur með honum.
Það kemur ekki á óvart hve vel honum hefur gengið því að
hann vann sig hratt upp hjá Samskipum þó að hann væri oft í
erfiðum verkefnum. Hann tók við fyrirtækjum í erfiðleikum og
endurskipulagði reksturinn. Og tókst yfirleitt vel til. Hann er
sannfærandi og ekkert að skafa utan af hlutunum. Fólk, sem
hittír hann, sér strax að hann ætlar sér að ná árangri. Það hefur
einkennt hann alla tíð. Hann hefur klárað hlutína og snúið sér
svo að næsta verkefnisegir Birkir.
Horfir fram á wið Baldur er góður stjórnandi, krefjandi, kröfu-
harður og sanngjarn, að mati Steingríms Péturssonar, meðeig-
anda hans í Sjöfn hf. „Við eyðum öllum dögum saman, hann
sem framkvæmdastjóri og ég sem aðstoðarframkvæmdastjóri
og mér þykir gott að umgangast hann. Hann deilir og dreifir
ábyrgð, skipuleggur verkefni fram í tímann og er iðulega búinn
að sjá fyrir leik númer tvö, þijú og jafnvel tjögur. Hann horfir
fram á veginn og reynir að sjá fyrir hlutína en er ekkert að
hugsa um það sem liðið er. Hann er óhræddur við að viður-
kenna mistök og læra af þeim.“
Þegar rætt er við fólk sem hefur kynnst Baldri í gegnum
tíðina kemur í ljós að hann getur verið óþolinmóður, ósann-
gjarn, fljótfær og úthaldslítíll. Hann getur átt til að vera óbil-
gjarn gagnvart samstarfsaðilum og meðtjárfestum. Það hefur
verið einkenni Baldurs sem stjórnanda að vilja móta menn til
starfa sér við hlið. Hann hefur gjarnan ráðið tíl sín ungt og
efnilegt fólk á aldrmum 25-30 ára. Baldur vinnur hratt og mikið
og sem stjórnanda má ef til vill líkja honum við hérann í
sögunni um hérann og skjaldbökuna því að hann vill að hlut-
irnir séu gerðir vel og rösklega. Hann getur verið bráður í
skapi, stokkið upp á nef sér ef honum þykir skorta á. Hann
getur stundum æst sig hressilega og hafa sumir sagt að hann
ættí að láta aðra sjá um starfsmannamálin. Ekki eru þó allir við-
mælendur Fijálsrar verslunar sammála því. Sagt er að Baldur
eigi auðvelt með að vinna úr skapi sínu og koma til móts við
fólk. Hann er óragur við að taka á viðkvæmum málum en getur
átt það til að ganga of hratt og langt. Baldur þykir stundum
öfgafullur í viðhorfum eins og hann sjái bara svart og hvítt og
sagt er að stundum eigi hann erfitt með að hlusta á rök. S3
Baldur Guðnason
Fjolskylda Kvæntur Örnu Alfreðsdóttur, meinatækni og fv. starfsmanni íslenskrar erfða-
greiningar. Þau eiga þrjú börn, Hörpu 15 ára, Frey 9 ára og Berglindi 3 ára.
Foreldrar Guðni Örn Jónsson, múrarameistari á Akureyri - hann er látínn - og Rannveig
Baldursdóttir, hárgreiðslukona. Baldur á þijú systkini.
Menntun Stúdentspróf frá VMA1986. MBA í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík
2002. Ýmis námskeið bæði heima og erlendis.
Ferill Framkvæmdastjóri Sjafnar hf. frá 2003, stjórnarformaður og eða stjórnarseta í
ýmsum dóttur- og hlutdeildarfélögum ásamt stjórnarsetu í öðrum fyrirtækjum.
Starfandi stjórnarformaður Hörpu Sjafiiar hf. 2001-2002, framkvæmdastjóri Mjallar
2001 og framkvæmdastjóri og aðaleigandi Sjafnar hf. á Akureyri frá 2000. 1987-
2000 starfsmaður Samskipa heima og erlendis. 1984-1986 starfsmaður Iðnaðar-
bankans á Akureyri.
Áhugamál Útivist, veiðar, golf og skíði.
Fæddur 22. janúar 1966.
29