Frjáls verslun - 01.07.2003, Side 38
Móttaka Hönnunar hf. er með léttu yfirbragði.
Mynd: Geir Ólafsson
Hönnun hf. er eitt elsta og öflugasta tækniþekkingar-
fyrirtæki landsins, en það er 40 ára um þessar mundir,
stofnað árið 1963.
Starfsemi Hönnunar hf. er viðamikil og nær yfir flest það er lýtur að ráð-
gjöf við húsbyggingar, samgöngur og samgöngumannvirki, stofnlagnir og
veitur, orkuver og orkuflutning, stóriðjuver, vélbúnað og iðnaðarferli, jarð-
fræði- og byggingarannsóknir, umhverfismál, byggingastjórn og eftirlit
og stjórnunarráðgjöf.
„Þjónusta okkar nær yfir mjög breitt svið," segir Eyjólfur Árni Rafns-
son, framkvæmdastjóri Hönnunar hf. „Meginflokkarnir eru taldir hér að
ofan og eru viðskiptavinir okkar einstaklingar, fyrirtæki, sveitarfélög og rík-
isstofnanir víða um land. Meðal annars höfum við átt gott samstarf við
opinbera aðila varðandi vega- og gatnahönnun, brúarhönnun og hönnun
hafnarmannvirkja og svo aðila í atvinnulífinu vegna margvíslegra verkefna,
t.d. við stærsta atvinnuveg þjóðarinnar, sjávarútveginn. Hin síðustu ár
hafa verkefni í umhverfismálum, eins og mat á umhverfisáhrifum, verið
vaxandi þáttur hjá fyrirtækinu og má segja að við höfum á einn eða annan
veg komið að öllum stærri umhverfismálum hér á landi undanfarin ár.“
40 ára afmæli á þessu ári
Hönnun hf. hefur starfað í 40 ár eins og áður sagði og allan þann
tíma hefur fyrirtækið vaxið og aukið við starfsemina jafnt og þétt.
Starfsmenn eru rúmlega 120 og flestir þeirra háskólamenntaðir,
m.a. byggingarverkfræðingar, tæknifræðingar, vélaverkfræðingar,
tæknifræðingar, jarðfræðingar, jarðverkfræðingar, líffræðingar,
landfræðingar, stjórnmálafræðingar, rekstrarfræðingar, kerfis-
fræðingar og umhverfisverkfræðingar svo að eitthvað sé nefnt.
Fjölbreytt og gott mannval gerir það að verkum að fyrirtækið getur
tekist á við hvers konar verkefni og hefur til þess hæft fólk.
Stærstu verkefnin
„Starfsmenn okkar hafa á liðnum árum komið að ráðgjöf vegna bygg-
ingar landsþekktra mannvirkja. M.a. er um að ræða hönnun bygg-
inganna, byggingastjórn eða framkvæmda- og kostnaðareftirlit.
Starfsmenn okkar hafa komið að byggingum eins og höfuðstöðvar
Orkuveitu Reykjavíkur, Smáralind í Kópavogi, Norðurál í Hvalfirði,
Síldarvinnslan í Neskaupstað, brú yfir Jökulsá á Brú, verslunarhús
BYKO á Breiddinni, Nýheimar á Hornafirði, hjúkrunarheimilið við
Sóltún, Hótel Selfoss, Bláa lónið, Grafarvogskirkja, Vatnsfellsvirkjun,
Kárahnjúkavirkjun, smávirkjun í Tasiilaq á Grænlandi, fráveitumál í
Mosfellsbæ, ýmis þjónusta við SR-Mjöl, undirbúningur álvers í
Reyðarfirði, Hvalfjarðargöng, forhönnun Reykjanesbrautar frá
Hafnarfirði til Keflavíkur, stækkun Straumsvíkurhafnar og jarðgöng
milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Er þá aðeins fátt eitt upp
talið," segir Eyjólfur Árni.