Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Qupperneq 48

Frjáls verslun - 01.07.2003, Qupperneq 48
Tekur þú óþarfa áhættu á ferðalögum erlendis? Skelfiskur er varasamur og ísmolar í drykknum - Hættan getur leynst alls staðar og því er nauðsynlegt að láta bólusetja sig gegn lifrarbólgu! ViSskiptamenn fara mikið utan og ferðast oft til landa þar sem lifrarbólga er mjög algeng og skortur er á hreinlæti. Ekki þarf nema einn smitaðan einstakling, sem t.d. uinnur í eldhúsinu á fínu ueitingahúsi, til að smit sá komið í matinn. Það skiptir þuí miklu að uerja sig með bólusetningu áður en lagt er af stað í ferðalagið. Á ferðalögum erlendís er töluverð hætta á að smitast af ýmsum sjúkdómum, sérstaklega í framandi og fjarlægum löndum, en meðal algengustu og alvarleg- ustu sjúkdóma sem hægt er að smitast af á ferðum erlendis er lífrarbólga A og B. Lifrarbólga A smitast með mat og drykk og lifrarbólga B smitast með blóð- blöndun og líkamsvessum. Bóluefni hefur verið til um nokkurt skeið en þrátt fyr- ir það hefur tíðni nýsmitaðra ekki minnkað á Vesturlöndum á síðustu árum. Þetta má að einhverju leyti rekja til aukínna ferðalaga til landa þar sem útbreiðsla lifr- arbólgu er mikil. Lifrarbólga A er algengasti sjúkdómurinn sem herjar á ferða- langa á eftir niðurgangi og malaríu og eru fslendingar mjög næmir fyrir henni þvi fæstir þeirra hafa náttúrulega vörn gegn þessari veiru. Lifrarbólga B er hins veg- ar sá sjúkdómur sem aukist hefur hvað mest meðal evrópskra ferðamanna. Lifrarbólga A er í flestum tilfellum ekki lífshættulegur sjúkdómur en hún leið- ir til mikillar bólgu í lifur og getur það tekið sjúklinginn langan tíma, jafnvel hálft til eitt ár, að ná fullri heilsu. Það skiptir því miklu að forðast smít. Hægt er að láta bólusetja síg með Havrix gegn lifrarbólgu A fyrir ferðalagið á næstu heilsu- gæslustöð. Eftir tvær bólusetningar er komin a.m.k. 20 ára vörn gegn lifrar- bólgu A. Bólusetning gegn lifrarbólgu B þarf að gera einum mánuði fyrir brott- för og eftir þrjár bólusetningar næst a.m.k. tíu ára vörn gegn henni. Einnig er hægt að fá samsett bóluefni, Twinrix, sem veitir vörn gegn bæði lifrarbólgu A og B. Bólusetningunum fylgir handhægt skírteini þannig að auðvelt er að sjá hvenær á að koma í viðhaldsbólusetningar. Hættan á smiti eykst til mikilla muna ef dvalist er meðal innfæddra, farið í safaríferðir, gönguferðir eða lestarferðir og þegar dvalist er lengi f framandi landi. Það er því fyrir slík ferðalög sem mest áríðandi er að láta bólusetja sig. Flensulík einkenni Lifrarbólga A er oftast tengd við fátæk ríki, lélegt hreinlæti og skort á hreinu vatni. Helstu smitleiðir eru með vatni og saur. Lifrarbólguveiru A er að finna í menguðu vatni, í ávöxtum og grænmeti sem hefur verið skolað með menguðu vatni, ísmolum í drykkj- um, ósoðnum eða snöggelduðum mat, eins og t.d. skelfisk. Alls staðar þar sem hreinlæti er ábóta- vant og hreint vatn kemst í snertingu við skólp er hætta á smiti, t.d. á baðströndum sem liggja ná- lægt frárennsli. Rétt er að taka fram að þeim til- fellum fjölgar stöðugt þar sem ekki er fyllilega Ijóst hvernig sjúkdómurinn hefur smítast, m.a. vegna þess hve langur tími getur liðið frá þvi smitið á sér stað og sjúklingurinn veikist. Einkenni sjúkdómsins koma ekki fram strax og því getur smitið borist áfram áður en sjúkdómurinn uppgötvast. Útbreiðsla er mikil meðal barna sem síðan geta smitað eldri systkini, foreldra og vini. Meðgöngutími sýkingarinnar er um það bil einn mánuður. Einkennin verða fyrst eins og um flensu sé að ræða. Sjúklingurínn fær hita, honum líður illa og matarlystin minnkar. Eftir veikindi (um viku koma fram hefðbundin einkenni lifr- arbólgu, þvagið verður dökkleitt, húðin gulleit, hvítan í augum gulnar og sjúkling- urinn fær verki í kvið. Ekkí er til nein meðferð við lifrarbólgu A og getur það tek- ið sjúklinginn marga mánuði að jafna sig og ná fullri heilsu. Orsakar krabbamein Lifrarbólga B smitast við blóðblöndun og kynmök. Meðgöngutíminn er 2-6 mán- uðir og minna einkennin á flensu með hita, ógleði og uppköstum, líkt og gildir um lifrarbólgu A. Þriðjungur smitaðra fær gulu. I Mið-Afríku og Suðaustur-Asíu, þar sem útbreiðslan er mikil, telst þessi sjúkdómur til barnasjúkdóma því að þar smitar móðir barn sitt í fæðingu eða á fyrstu æviárum þess. Lifrarbólga B er mjög algeng í Suðaustur-Asíu þar sem um 20 prósent mannfjöldans smitast á hverju ári og næstum allir hafa einhvern tímann sýkst af sjúkdómnum. Talið er að alls hafi yfir 2000 milljónir manna sýkst af lifrarbólgu B í heiminum í dag. Einn af hverjum tíu til tuttugu verða langvarandi smitberar og geta smitað aðra með blóði og við kynmök. Börn veikjast sjaldan af þessum sjúkdómi og það eru helst þau sem verða langvarandi smitberar. Um fjórðungur langvarandi smitbera fá síðar á ævinni skorpulifur eða krabbamein I lifur og ger- ir þetta lifrarbólgu B að einum helsta orsakavaldi krabbameins í heiminum, næst á eftir reykingum. Hættan á lifrarbólgu B er mest við kynmök án smokka, götun á húð, nál- arstungur, húðflúr og meðferð á heilbrigðisstofnun þar sem notaðar eru vörur sem innihalda blóð. Tíðní lifrarbólgu á íslandi I íslenskri rannsókn kemur fram að 49 einstaklingar hafa greinst með lifrarbólgu A á árunum 1986-1989 og er talið að tæplega helmingur þeirra hafi smitast á ferðalögum erlendis. Ekki er vitað hve algengur þessí sjúkdómur er hér á landi í dag, en búast má við að þeir séu mun fleiri sem smitist á ári hverju en var fyrir rúmlega áratug síð- an. Þá verður að hafa í huga að sjúkdómurinn verð- ur stöðugt algengari erlendis, ekki síst i löndum þar sem hann hefur veríð tiltölulega fátíður, eins og t.d. í Bandaríkjunum og öðrum löndum þar sem innflytjendur frá fátækum löndum eru margir. Á síð- ustu árum hafa að meðaltalí verið greind 20-50 ný tilfelli af lifrarbólgu B á ári hverju.BH GlaxoSmithKline Þverholti 14, Reykjavík., Sími: 530 3700 - Fax: 530 3701. www.gsk.is - www.gsk.com - worldwidevaccines.com. Netfang: hr271B8@gsk.com 48 KYNNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.