Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 50
Hvað með þig? Velur þú meðvitað viðmót þitt og leggur þú þitt
af mörkum til að hafa meira gaman og ná meiri árangri í vinn-
unni og gera þannig þinn vinnustað að fyrirmyndarvinnustað?
Breytingarferlið og lykilatriðin fjögur Eins og áður sagði kom
að því að starfsfólk Pike Place ákvað að breyta ástandinu á
vinnustaðnum og setti sér af því tilefni eitt markmið, að gera
vinnustaðinn heimsfrægan!!
Nú þegar þessu markmiði hefur verið náð og starfsfólkið er
beðið um að segja frá því hvað það gerði til að ná því er það
sammála um fjögur atriði sem skiptu öllu máli við það og þar
með að hjálpa þeim að hafa meira gaman í vinnunni og ná betri
árangri. Atriðin eru þessi:
1. Að velja viðmót sitt.
2. Hafa gaman og leika sér.
3. Gera daginn eftirminnilegan.
4. Að vera til staðar.
Þessum atriðum beitir starfsfólkið á fiskmarkaðnum í sínum
störfum en atriðin geta þó átt við í hvaða störfum sem eru.
Verða hér nefnd nokkur dæmi.
..FISH-HUGMYNDAFRÆÐIN"
Langarþig að hafa meira gaman í vinnunni og ná meiri
árangri. Hér koma fjögur atriði sem þú getur tileinkað
þér og hjálþa þér að settu markmiði. Erlendis eru þau
þekkt sem „FISH-hugmyndafræðin“.
Textí: Herdís Pála Pálsdóttir Myndir: Geir Ólafsson
Langar þig að læra um þau fjögur atriði sem geta hjálpað þér
að hafa meira gaman og ná meiri árangri í vinnunni? Þú
hefur væntanlega heyrt um þau áður en nú er komið að því
að setja þau í rétt samhengi og fara að tileinka sér þau!!
Víða erlendis eru þessi atriði þekkt sem „FISH-hugmynda-
fræðin" og er það vegna þess að þau voru sett fram af starfs-
fólki Pike Place fiskmarkaðarins í Bandaríkjunum.
Starfsfólk Pike Place tileinkaði sér einmitt þessi fjögur
atriði og tókst þannig að breyta vinnustaðnum. Áður var þetta
vinnustaður með háa starfsmannaveltu, litla starfsánægju,
starfsfólk sem gerði eins lítið og það komst upp með og sýndi
hvorki samstarfsfólki eða viðskiptavinum neinn sérstakan
áhuga. Nú er þetta vinnustaður þar sem starfsmannavelta er
nánast óþekkt, starfsánægja og þjónustustig er mjög hátt og
það sem meira er, fólk flykkist að vinnustaðnum til að íylgjast
með starfsfólkinu vinna vegna þess að það er svo gaman hjá
því í vinnunni, meira að segja stoppa þar rútur með ferða-
menn!! Ekki nóg með það, heldur eru ijölmörg þekkt alþjóða-
fyrirtæki farin að innleiða hugmyndafræði Pike Place hjá sér,
t.d. Southwest Airlines, Ford Motor Company, AT&T og
fleiri.
1. Að velja viðmót sitt
Það tók starfsfólk fiskmarkaðarins um það bil eitt ár að tileinka
sér það að ákveða sjálft viðmótið sem það ætlar að sýna öðrum,
hvort sem það er samstarfsfólk eða viðskiptavinir. Ef starfsfólk
mætir í vinnuna í vondu skapi hefur það slæm áhrif á sam-
starfsfólk og viðskiptavini, en með því að hafa stjórn á viðmóti
sínu og leggja sig fram getur fólk haft góð áhrif á umhverfi sitt.
Starfsfólk Tile Technology Roofing, sem vinnur við að setja
þakskífur á þök húsa, er einnig orðið mjög meðvitað um þetta
val. Stjórnendur og eigendur íyrirtækisins innleiddu þennan
hugsunarhátt í upphafi, en þeir fóru að gera sér grein týrir mik-
ilvægi mannauðsins og mannauðsstjórnunar þegar starfs-
mannavelta hjá þeim var í hærra lagi og starfsfólkinu var meira
umhugað um afköst en gæði. Sljórnendurnir vissu af Pike
Place, enda í næsta nágrenni, og að þessir vinnustaðir áttu ýmis-
legt sameiginlegt, til dæmis það að meginþorri starfsfólks eru
ungir karlmenn að vinna störf sem fæstir aðrir vilja vinna. Þeir
vissu að starfsfólk fiskmarkaðarins glímir við mörg vandamál
en kýs að taka á þeim á jákvæðan hátt. Starfsfólk Tile
Technology Roofing glímir við rigningu, vind og snjó, stundum
er mjög kalt og stundum mjög heitt. Það ætti þó ekki að stjórna
viðmóti og viðhorfi starfsfólksins. En þó að starfsmenn ættu
auðvelt með að gera sér grein fyrir þessu einfalda atriði; að velja
viðmót sitt, reyndist þeim erfiðara að fara eftir því á hveijum
degi. En hægt og rólega tókst það þó. Þetta hefur líka haft þau
áhrif að öll samskipti innan týrirtækisins, formleg eða óformleg,
eru orðin afslappaðri og persónulegri. Þetta heíúr líka haft þau
áhrif á viðskiptavinina að þeir eru nú ánægðari en áður og tím-
inn sem tekur að innheimta reikninga er marktækt styttri.
Höfundur greinarinnar er Herdís Pála Pálsdóttir, MBA í mann-
auðsstjórnun.
50