Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Síða 61

Frjáls verslun - 01.07.2003, Síða 61
Þorgeir Daníelsson, eigandi Vinnufata- búðarinnar. „Ég held að það sé mjög gott að vera alltaf á sama stað." Vinnufatabúðin Melabúðin 62 ára 48 ára Vinnufatabúðin er ein af gömlu traustu fataverslununum við Laugaveginn sem allir landsmenn þekkja. Þórarinn Kjart- ansson, afi núverandi eiganda, setti á stofn verslun með vinnufatnað á Laugavegi 76 árið 1941 en áður hafði hann rekið gúmmívinnustofu í húsinu. Afkomendur Þórarins hafa síðan rekið verslunina. Daníel Þórarinsson, sonur hans, kom inn í reksturinn og rak síðan búðina lengi vel ásamt móður sinni og síðar sonum sínum tveimur. Þegar hann lést tók annar þeirra, Þorgeir, við og þar starfar hann í dag ásamt eiginkonu sinni, Hildi Símonardóttur, og fleiri starfsmönnum. Vinnufatabúðin hefur nú þjónað landsmönnum í rúm 60 ár. Vinnufatabúðin seldi grófan vinnufatnað fyrstu árin en færði sig smám saman yfir í meiri „stælfatnað" og var með þeim fyrstu hér á landi til að selja amerískar gallabuxur af gerðinni Lee og Wrangler og hermannafatnað. I dag býður verslunin upp á klassískan vinnufatnað fyrir herra, - kannski ekki jakkaföt en sígildar gallabuxur, skyrtur, peysur, yfir- hafnir af ýmsu tagi og ijölbreytilegan höfuð- og skófatnað. Viðskiptavinahópurinn er stór og ekki er óalgengt að tveir til þrír ættliðir komi saman til að kaupa sér fatnað. „Við höfum verið heppin með vöruúrval og viðskipta- vinirnir hafa komið til okkar og haldið tryggð við okkur. Við höfum kappkostað númer 1, 2 og 3 að vera með góða vöru og það skiptir miklu máli. Nýjar verslanir hafa ekki tekið nein viðskipti af okkur og það segir sína sögu. Við erum hérna á Laugaveginum og höfum ekkert verið að færa okkur um set. Ég held að það sé mjög gott að vera alltaf á sama stað. Okkur þykir mjög vænt um að vera á Lauga- veginurn," segir Þorgeir. S3 Melabúðin þótti sannkallað „tækniundur“, stór og glæsi- leg, þegar hún var opnuð árið 1955 enda var hún þá stærsta kjöt- og nýlenduvöruverslunin í Reykjavík. Sigurður Magnússon, fv. formaður íþróttasambands fatlaðra, byggði húsnæðið og rak Melabúðina í 20 ár. Núverandi eigandi, Guð- mundur Júlíusson, sem hafði rekið Kjörbúð Vesturbæjar, tók við Melabúðinni 1979. Synir hans tveir, Friðrik Ármann og Pétur Alan, starfa nú með honum við verslunina, Pétur hefur verið við reksturinn í 15 ár og Friðrik, sem var framkvæmda- stjóri verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar, er nýkominn til starfa. Þriðji bróðirinn vinnur í markaðsdeild íslandsbanka. Melabúðin hefur haldið sínu striki í áranna rás. Þegar mjólkurbúðin sem var við hlið verslunarinnar var lögð niður á sínum tíma var Melabúðin stækkuð sem því nam auk þess sem byggt var við verslunina Hagamels megin. Melabúðin Guðmundur Júlíusson ásamt sonum sínum, Pétri Alan og Friðriki Ármanni, en þeir starfa með honum í Melabúðinni. 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.