Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 84
Bokamerkin min
Ingvi Jökull Logason, einn af eigendum auglýsinga-
stofunnar Hér og nú, bendir á www.adforum.com
þar sem finna má metnaðarfullar verðlaunaauglýs-
ingar frá öllum heimshornum.
Mynd: Geir Ólafsson
Fyrir utan þessar hefðbundnu daglegu heima-
síður, sem flestir Netverjar skoða reglulega, þá
smelli ég mér á eftirtaldar síður til að fylgjast
með eða til að nýta mér þjónustu," segir Ingvi Jökull
Logason, einn af eigendum auglýsingastofunnar
Hér og nú.
AdfOrum.COm Allar nýjustu og áhugaverðustu aug-
lýsingarnar sem framleiddar eru í dag. Metnaðar-
fullar verðlaunaauglýsingar frá öllum heimshornum.
Espn.COm Besta sportsíðan, skoða þó aðallega
körfuna. Hef fylgst með NBA körfuboltanum frá því
Bird og Magic leiddu baráttu austurstrandarinnar við
vesturströndina. Hægt að fylgjast með leikjunum
„live“ þegar maður vinnur fram eftir. Lakers hefur
alltaf verið mitt lið. - Þeir taka titilinn í ár!
Adweek.COm Ameríski og evrópski auglýsinga-
heimurinn í hnotskurn. Straumar og stefnur ásamt
því hveijir eru að gera hvað. Ahugaverðar greinar
um rannsóknir á auglýsingum í öllum miðlum mark-
aðssamskipta.
Effie.is Samband íslenskra auglýsingastofa er að
koma á fót nýrri auglýsingakeppni sem snýst um að
verðlauna auglýsingar sem hafa sannanlega náð góð-
um árangri á markaði. Effie-vefurinn geymir alla upp-
lýsingar um keppnina og þátttöku í henni. Þetta er
keppni sem allir alvöru markaðsmenn vilja ná langt í.
Uwf.COm Fylgist með því sem er að gerast í skól-
anum mínum. Sérstaklega auglýsinga- og almanna-
tengsladeildinni sem er ein sú eftirtektarverðasta í
Bandaríkjunum og margverðlaunuð. 33
84
FYRIRTÆKIN A NETINU
www.sentKer.is ★★★
Léttur og ljós yfirlitum er hann
vefurinn sem Sent þér auglýs-
ingavörufyrirtækið heldur úti á
Netinu, einfaldur, vel skipu-
lagður og smekklegur og virð-
ist virka ágætlega sem kynning
á fyrirtækinu og vörum þess.
Myndir eru margar og ekkert
yfir þeim að klaga. Áforsíðunni
birtist mynd sem er algjörlega ótengd efninu að öðru leyti. Sjálf-
virknin sér til þess að þarna birtist ný mynd í hvert sinn sem komið
er inn á síðuna. 33
....... w
—
m mé
sentþér 1 1(1 * f /»#:
www.eykt.is ★
Verktakafyrirtækið Eykt er jz
með ágætan vef sem kynnir
fyrirtækið og helstu verkefni
þess. Vefúrinn virkar þó ekkert
ýkja spennandi og við skoðun
kemur í ljós að það mætti að
mörgu leyti móta hann betur.
Forsíðan er tviskipt með lóð-
réttri kynningu á fyrirtækinu til
vinstri og fréttum til hægri. Útlitslega og efnislega kemur þetta
ekki vel út. Eykt kynnir verkefni í vinnslu með myndum og texta og
er það ágætt. Starfsmannalisti er á sínum stað, þó að ekki séu allir
starfsmenn inni á vefnum, og hægt er að leita. Þessi vefur ber þess
merki að Eykt er bara rétt að byrja. 33
www.velasalan.is ★★
Ekki er hann áhugavekjandi
eða hressilegur vefurinn sem
Vélasalan er með en þó virðist
ágætur til síns brúks. Vefur-
inn er lítur sæmilega út, ljós
og settlegur, og inniheldur allt
það nauðsynlegasta en galli er
þó á gjöf Njarðar að þrír flipar
virka ekki, þ.e. ekkert kemur
upp þegar smellt er á vörulista, vörumerki eða þjónustu. Einnig
er furðulegt og kannski galli að fyrirtæki í miklu samstarfi við Pól-
verja og Norðmenn eftir því sem best verður séð skuli ekki
bjóða upp á þjónustu á pólsku, norsku eða jafnvel ensku. 33
★ Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★★★ Góður
★★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit, upplýsinga- og fræðslugildi, myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@heimur.is