Morgunn - 01.12.1963, Síða 5
MORGUNN
79
angri á þessu sviði, og það er von mín, að sú þekking
ein kunni að verða þess megnug, að snúa hugum manna
á ný að æðri viðfangsefnum en auðsöfnun og sællífi, og
að hún verði þess megnug, ef nokkuð verður,. að forða
þessum heimi, sem vissulega gæti átt mikla og fagra
framtíð, frá algerri tortíming.
Dr. Harlow.
Mér datt í hug að segja ykkur örlítið frá bók um ei-
lífðarmálin, sem kom út í sumar, vakið hefur mjög
mikla athygli, og er ein hin eftirtektarverðasta, sem ég
hefi lesið. Bókin heitir A Life after Death, eftir dr.
Ralph Harlow.
Dr. Ralph Harlow stundaði nám við Harvard háskóla
undir handarjaðri heimspekingsins nafnkunna William
James, nam síðan guðfræði og var prestur um skeið, en
kenndi síðan trúfi-æði við Smith College í Bandaríkjun-
um. Frá ungum aldri hneigðist hugur hans mjög að svo-
nefndum ,,paranormal“ fyrirbrigðum, enda kom ýmis-
legt slíkt fyrir hann sjálfan og konu hans Marion. En
einkum virðist þó systir hans Anna, hafa verið gædd
miklum dulrænum gáfum. Á langri ævi kynntist dr.
Harlow mörgum merkilegum miðlum og þar á meðal var
hann til margra ára á fundum með Margery Crandon.
Einnig hefur hann fylgzt með merkilegum rannsóknum
dr. John B. Rhine við Duke-háskólann í North Carolina,
þar sem hann hefur ásamt mikilli hjálparsveit lærðra
manna kannað það, sem hann kallar „extrasensory per-
ception“ (í styttingu venjulega kallað ESP, en gætiheit-
ið á íslenzku yfirskilvitleg skynjun), og komizt að ýms-
um merkilegum niðurstöðum. Enn fremur hefur á seinni
árum verið komið upp kennarastólum í sálarrannsókn-
um (Parapsychology) við sálfræðideild Columbia-háskól-
ans og við Swarthmore College í Pennsylvania. Sýnir
þetta að þessu málefni er nú farið að gefa meira gaum