Morgunn - 01.12.1963, Side 38
Sálarrannsóknir og kristnar
hugmyndir um dauðann
★
Kunnur brezkur guðfræðingur og lærdómsmaður, eink-
um í heimspeki, dr. phil. F. H. Cleobury, sendi frá sér
á þessu ári bók, sem fyrir margra hluta sakir er at-
hyglisverð og hann kallar: Frjálslyndur kristinn rétt-
trúnaður (Liberal Orthodoxy).
Hann neitar því, að hin íhaldssama guðfræði, sem
jafnan er kölluð „rétttrúnaður,“ sé raunverulega svo. Og
hann telur hina frjálslyndu guðfræðistefnu miklu frem-
ur túlka rétta, kristna trú, eða rétttrúnað.
Meðal annars vegna þess, að íhaldssamir guðfræðingar
hér á landi hafa verið að halda því fram, að íslenzkir
prestar geri sig að viðundri í augum erlendra stéttar-
bræðra sinna með því að gefa gaum eða tala vinsamlega
um sálarrannsóknir og spíritisma, er rétt, að Morgunn
segi frá því, sem þessi merki höfundur og lærdómsmað-
ur leggur til þeirra mála, en hann er maður mikils met-
inn í heimalandi sínu. Hann segir hlutlaust frá, svo að
báðum er gagnlegt spíritistum — og ekki spíritistum að
heyra mál hans. Hann er nákunnugur vísindalegum sál-
arrannsóknum, og honum er ekki síður kunnugt, að
brezkir spíritistar hafa margir haft tilhneigingu í þá
áttina, að gera málefni sitt að trú.
Síðasta kaflann í þessari merku bók nefnir hann:
Sálarrannsóknirnar og kristnar hugmyndir um dauðann.
Iíann víkur fyrst að ástæðum hinna miklu fordóma
gegn rannsóknum á dularfullum fyrirbrigðum og andúð
þeirri, sem fjöldi manna hafi á slíkum rannsóknum, og