Morgunn - 01.12.1963, Side 25
Hversu traust eru sönnunargögn
fyrir endurholdgun
Eftir próf. C.T.K. Chari.
★
C. T. K- Chari, höf. ritgerðar þeirrar, sem fer á eftir, er
kunnur indverskur lærdómsmaður, próf. við heimspeki-
og sálfræðideild háskólans í Madras, Indlandi, og höf.
fjölmargra ritgerða, sem birzt hafa í vísindatímaritum.
Hann ritar hér um mál, sem fjölmörgum nútímamönnum
er næsta hugleikið:
Mörg, ef ekki öll sönnunargögn síðari tíma fyrir end-
urholgun eru kamin frá Indlandi. Ég hefi áður látið
uppi nokkrar efasemdir um sönnunargildið. Flestar sög-
urnar eru komnar frá nokkrum borgum í Norður-Ind-
landi.
Ég hefi átt heima um 50 ára skeið í Madras í Suður-
Indlandi. Og um 30 ára bil hefi ég haft mikinn áhuga
fyrir sálarrannsóknum. Ég hefi aldrei kynnzt nokkrum
manni, sem tjáði sig „muna fyrri jarðvistir." En í
þröngum hópi valinna manna hefi ég orðið vottur að
mörgum spíritískum fyrirbrigðum,. allt frá ósjálfráðri
skrift til reimleikafyrirbrigða.
Gamall nemandi minn og mikils metinn vísindamaður,
V. K. Alexander, sem lærði sálarfræði í Princetonháskóla
og hefir síðan kennt vísindi sín í Kerala í Suður-
Indlandi, hefir verið áhugamaður mikill um rann-
sóknir á nokkrum tegundum afbrigðilegrar sálarfræði.
Hann varð svo heppinn að kynnast af eigin raun merki-
legu dæmi sálklofningar, þegar fleiri persónuleikar virð-
ast koma í ljós hjá sama manni. Og hann hefir kynnzt