Morgunn - 01.12.1963, Qupperneq 55
MORGUNN
129
Líkast til næst aldrei allsherjar samkomulag um það
mál.
I trúarbrögðunum lifir maðurinn allur. Þessvegna lit-
ast svar einstaklingsins af eigin viðhorfum hans sjálfs
og því, hvernig hann upplifir ti*úarbrögðin.
Sjálfur er ég þeirra á meðal, sem frá bernskuárum
hafa átt brennandi ósk um,, að þekkja sannleikann um
trúarbrögðin. Og ég var engan veginn sannfærður um,
að sannleikann hlyti að vera að finna í kristindóminum.
Það var þvert á móti margt í hinum kirkjulega kristin-
dómi, sem hratt mér frá honum og vakti efasemdir.
Þessvegna varð ég að velja aðra leið. Ég lagði af stað
út í heiminn til þess að kynnast öðrum trúarbrögðum
meðal lifandi játenda þeirra.
Þetta reyndist undarleg ferð um lönd andans, auðg-
andi og hrífandi ferð. Hún gaf mér víðsýni, sem ég vil
ekki fyrir nokkra muni hafa farið á mis við. Og þótt
kynni mín af öðrum trúarbrögðum hafi ekki fært mér það,
sem ég þráði innst inni, fann ég svo margt verðmæta í
þeim og varð fyrir svo djúpum og ógleymanlegum á-
hrifum af djúpri alvöru í trúarlífi þeirra, sem ekki voru
kristnir, að ég get aldrei átt samíeið með þeim, semlíta
niður á allt, sem ekki er af kristindóminum komið.
Sanna guðrækni og háleitt siðrænt líf er engan veginn
að finna aðeins innan vébanda kristindómsins.
1 bók minni, „Der mennesker blir guder“ (Þar sem
mennirnir verða guðir) hefi ég lýst kynnum mínum af
trúarlífi Austurlandabúa. Ég ætla að endursegja sumt
af því í stuttu máli.
Nokkrum mílum framundan borginni Ningpo, sem er
á austurströnd Kína, liggur lítil klettaeyja í Kyrrahaf-
inu. Þetta er Putoshan, hin heilaga eyja Kwanyin, móð-
ur-mey-gyðjunnar. Og þarna eru höfuðstöðvar Mahay-
anabúddhadóms.
Þarna er dásamlega fagui*t. Háir, naktir klettar, þar
9
L