Morgunn - 01.12.1963, Side 6
80
MORGUNN
en áður var í menntastofnunum vestan hafs. Hafa þeir
menn, sem staðið hafa að rannsóknum á þessum efnum
gert það af sömu sannfæring og hugvitsmaðurinn Edi-
son, er eitt sinn sagði, að rannsóknir á þessu sviði mundu
leiða í ljós staðreyndir, sem mundu koma til að hafa
miklu djúptækari þýðingu fyrir mannkynið, en allar
uppgötvanir sem gerðar höfðu verið í raffræði til þessa
dags.
Anna.
Dr. Harlow segir, að meðan Anna, systir hans lifði,
hafi stöðugt ýmsir atburðir verið að gerast kringum
hana. Þau voru mjög samrýmd systkinin, hún tveimur
árum yngri en hann, en vel menntuð og góðum gáfum
gædd. Giftist hún seinna presti að nafni Kingsley Birge,
sem var vinur Harlows og samverkamaður, svo að fjöl-
skyldurnar voru alltaf í nágrenni hvor við aðra.
Svo að eitthvað sé nefnt af kynlegum atburðum, sem
gerðust í nánd við önnu, var eitt, að grammófónn, sem
var í húsinu, tók iðulega að spila af sjálfum sér, ánþess
nokkur væri nálægur til að setja hann af stað. Mátti
horfa á það úr fjarlægð, að hann tók allt í einu að snú-
ast, þó að enginn væri nærri, síðan var armurinn, sem
hélt á nálinni, tekinn, og settur á plötuna, án þess nokk-
ur sýnilegur væri að verki og allt í einu hljómaði lagið
um stofurnar. Þetta var daglegur viðburður og ýmislegt
þessu líkt, og gat enginn fundið eðlilega skýringu á
þessu.
Bæði ritaði Anna ósjálfrátt og sá verur af öðrum
heimi. Anna og maður hennar bjuggu í Bristol, Conn-
ecticut. Það var eitt sinn er maður hennar var fjarver-
andi á prestaþingi í Boston, að Anna vaknaði um miðja
nótt við það, að henni fannst snert við handlegg sínum.
Hún leit upp og sá Margrétu, systir Kingsleys standa
við rúmstokkinn. Að lítilli stundu liðinni hvarf hún.