Morgunn - 01.12.1984, Síða 57
DAUÐI OG UPPRISA
131
ekki og eru okkur hulin. 2. og 3. líkamar eru ytri og innri
tilfinningalíkamar, 4. og 5. líkamar eru ytri og innri hug-
likamar, 6. líkami er svo innsœis eða við getum líka kallað
hann orsaka líkama, 7. líkami, er innsta Ijósið — kjarninn,
sem lýsir allt upp og gefur okkur líf. Innsta ljósið er þrí-
þætt — faðir —sonur — heilagur andi, hvítt — gult —
fjólublátt.
Tilfinninga- eða geðlíkaminn er sem gulhvítur stór hjúp-
ur, næstur líkamanum, getur umlukið alla okkar líkami.
Þar kvikna allskonar litir fallegir sem ljótir með mismun-
andi hreyfingum, eftir tilfinningum okkar og geðsveifl-
um. 1 honum eru ótal straumar og straumköst — líka
ljúfar hreyfingar eða þungar bylgjur líkt og hafið.
Huglíkaminn er kyrrari en tilfinningalíkaminn, hann
tekur hægar breytingum. Er hann eins mismunandi og
margbreytilegur og manneskjurnar eru margar. Sumir
hafa fallega formaða huglíkami og aðrir hafa litla og
óljósa huglíkami. Oft kvikna þeir og skína, bera birtu —
og oft má sjá allskonar hugform, sem kvikna.
Innri hug- og tilfinningalíkamir sjást ekki alltaf. Ytri
hug- og tilfinningalíkamir þurfa að hafa náð vissum tær-
leika til að þeir innri sjáist.
Innsæis- eða orsakalíkaminn er oftast það fallegasta við
hverja mannveru. Hann tekur hægast breytingum, þó get-
ur hann breyst eftir þroska okkar.
Innsta ljósið er geisli úr sól guðdómsins.
Þá komum við að heimunum:
Heimar þessarar plánetu eru 7. Þéttastur er efnisheim-
urinn, sem er sennilega besti skólinn með 4 víddir sínar.
Þetta er hviti heimurinn.
2. heimurinn er geðheimur — blái heimurinn.
3. heimur er hugheimur — græni heimurinn.
4. heimur er innsæisheimur — guli heimurinn.
5. heimur er andllegi heimurinn — gulrauði heimurinn.
6. heimur er eindarheimur — ljósrauði heimurinn.
7. heimur er guðlegi heimurinn — fjóluliti heimurinn.