Morgunn - 01.12.1984, Blaðsíða 70
EINAR H. KVARAN:
NÝJUSTU KENNINGAR
UM ANNAÐ LÍF
Þessi grein birtist í Vf árg. Morguns 1933, en er þrátt
fyrir háan aldur í fullu gildi í dag sem fræöandi efni um
lífiö eftir „dauöannBókin „Tlie Road to Immortality" er
talin ein af klassisku verkum sálarrannsóknarmanna í heim-
inum í dag. Ritstj.
Ef spurt er að, hvert sé aðalmarkmið hinna sálrænu
vísinda, þá finnst mér skynsamlegt að svara svo, að það
sé þrískipt:
1. Að rannsaka eðli sálarlífsins og þó að sjálfsögðu
sannanir fyrir framhaldslífinu og hvort nokkur kostur sé
á að ná sambandi við annan heim.
2. Að gera oss framhaldslífið skiljanlegt.
3. Að leitast við að afla oss lífsskoðunar, sem skýrir
ekki aðeins tilgang þessa jarðneska h'fs, heldur iíka, hvers
eðlis þroskun vor verður, eftir að sálin hefur losnað við
jarðneska iikamann.
Bókin, sem mig langar til að segja ykkur nokkuð frá,
fjallar um þessi efni. En einkum þó um tvö atriði: hvernig
framhaldslífinu sé háttað.
Bókin heitir The Road to Immortality (ódauðleika leið-
in). Mikill hluti hennar, sá hlutinn, sem ég geri sérstak-
lega að umtalsefni, hefur verið ritaður ósjálfrátt af konu,
sem heitir Geraldine Cummins. Hún er áður fræg fyrir
ósjálfráð skrif sín. Tvö allstór bindi af þeim hafa komið