Morgunn - 01.12.1984, Page 98
172
MORGUNN
„Konan þarna í kápunni, jú þú sem situr þarna út
við súluna. Ég sé að á bak við þig stendur gráhærður
maður og hann styður höndunum á axlir þínar. Mér finnst
eins og hann sé að reyna að koma einhverjum skilaboðum
til þín en ég heyri þau illa. Ég sé jafnframt á áru þinni að
þú elskar lífið, þér þykir gaman að vera til. Þú ert þó
jafnframt dálítið ráðrík. Mér finnst eins og gráhærði mað-
urinn sé að segja, að þó að þú sért ofurlítið ráðrík, þá sé
það nú þannig að þú hafir oftast á réttu að standa. Ég sé
jafnframt ljósmynd af þér og ungum manni og mér finnst
eins og þó gætir verið u. þ. b. 16 ára þegar þessi mynd
var tekin. Þetta er brúðkaupsmynd og gráhærði maðurinn
var svaramaður þinn eða eitthvað svoleiðis. Hann mun
hafa dáið stuttu eftir að þú giftir þig. Getur þetta pass-
að“? Konan svarar ofurlítið hikandi: „Nei ég minnist
þess ekki að það hafi verið tekin nein mynd þegar ég gifti
mig“. Miðillinn: „Ég er nú ekki alveg sammála, það var
örugglega tekin ljósmynd af ykkur. Þú skalt athuga þetta
í rólegheitum. Það á örugglega að vera til mynd sem var
tekin þennan dag eða stuttu á eftir, sem brúðkaupsmynd."
Orðaskipti sem þessi mátti heyra á skyggnilýsingafundi
hjá Sálarrannsóknarfélagi fslands á Hótel Hofi á dögun-
um. Sá sem hér hefur tveggja heima sýn er hinn þekkti
sænski miðill, Torsten Holmqvist, en hann er þekktur víða
um lönd fyrir hæfileika sína.
Útsendari Helgartímans var á fundinum og fékk tæki-
færi á því að ræða við miðilinn eftir fundinn.
Samkomusalurinn í kjallara hótelsins var þétt skipaður
áhugafólki um spíritisma en óvíða mun vera jafn mikiil
áhugi á slíkum málum og hér á landi. Það gætti nokk-
urrar spennu meðal gesta þegar miðillinn hóf fundinn.
Honum til aðstoðar var Guðmundur Einarsson verkfræð-
ingur en hann er forseti Sálarrannsóknarfélags íslands.
Guðmundur var jafnframt túlkur en Holmqvist talaði á
ensku.