Morgunn - 01.06.1991, Síða 5
Guðjón Baldvinsson:
RITSTJORARABB
Ágætu lesendur,
Fyrra hefti Morguns 1991 er hér með í ykkar höndum.
Að venju er efni Morguns að niestu helgað málefnum
spíritismans og því starfi sem innt er af hendi hjá Sálarrann-
sóknafélagi Islands í hans þágu. Starfi sem þar hefur verið
unnið að nú í hartnær 73 ár samfleytt, í gegnum þykkt og
þunnt, ef svo má segja og sem virðist, og þá í takt við
tíðarandann, blómstra mj ög um þessar mundir, ef marka má
fjölda félagsmanna S.R.F.I. og aðsókn að starfseminni.
Ymisleg andleg starfsemi er nú og í gangi vítt og breytt í
þjóðfélaginu af ýmsu tagi og stefnum. Er þar að sjálfsögðu
misjafn sauðyr í mörgu fé eins og gefur að skilja og því
miður ekki allt gull sem glóir af því sem boðið er fram og
kynnt undir merkjum dulhyggju og s.k. nýaldar.
Mikil umfjöllun á sér jafnframt stað í nánast vel flestum
fjölmiðlum landsins í dag, jafnt blöðum sem ljósvakamiðl-
um. Er reyndar svo komið að maður opnar vart fyrir útvarp
eða flettir dagblaði eða tímariti án þess að fyrir manni verði
ekki einhvers konar umfjöllun, og mér liggur við að segja,
oft á tíðum, upphrópanir eða dásemdardýrkanir á ýmsum
greinum dulspeki, stjörnuspeki, vináttu- og ástartali, ótta-
kenndri umfjöllun um aðjörðinogþaðlíf sem á henni þrífst
rambi nú á barmi heljarþramar.
Einhvern veginn læðist stundum að mér sá grunur að
þarna séum við ekki á réttri leið. Þegar að streymir slíkur
fjöldi ýmissa stefna og viðhorfa sem síðan er dembt yfir fólk
í massavís, nánast gagnrýnilaust, þá hlýtur að skapast