Morgunn


Morgunn - 01.06.1991, Page 15

Morgunn - 01.06.1991, Page 15
MORGUNN Mér var stýrt í þetta starf Straumar og öfl Þórunn Maggý þekkir fleiri miðla en sjálfa sig. Hvað vill hún segja okkur um þá. - Sumir eru með þetta sterkar í sér en ég, eins og Hafsteinn og Einar á Einarsstöðum. Þeir voru eiginlega á báðum stöð- um í einu. Þetta er eins og sá sem fæðist með einhvern ofsalegan reikningsheila og gerir hluti sem við kannski kunnum ekki. Einar á Einarsstöðum lét t.d. stoppa bílana þegar hann sá kindur eða eitthvað á götunni. Þá sagði pabbi hans: „Það er ekkert á götunni." Ég er ekki svona mikið á báðum stöðum, þó að ég hafi komið víða og séð margt. Þegar ég fer í strætó beini ég kannski augunum allt í einu beint aftan á einhverja manneskju fyrir framan mig án þess að vera að hugsa neitt sérstakt. Þá frýs augnaráðið. Ég get ekki hreyftaugun. Manneskjan fer aðhreyfa sigaf ónotum. Ég sé það en það er alveg sama hvað ég reyni, ég get ekki fært augun. Þar til allt í einu, þá er eins og manneskjan andvarpi af feginleik með líkamanum. Þetta er skrýtið. Ég skil þetta ekki og veit ekkert hvað gerist. Stundum fæ ég tilfinningu fyrir einhverjum straumum í umhverfinu, t.d. ákveðnum húsum. Mér finnst til dæmis alveg óskaplega gaman að dansa, en ég hef aldrei smakkað vín. Ég upplifði það að á sumum dansstöðum er alveg yndislegt að vera, en á aðra staði alveg hræðilegt að koma, - eins og maður ætli að kafna. Þetta hefur eitthvað að gera með það að víni fylgir alltaf grófleiki. Eg kann þó ekki að stýra þetta, því að mér finnst þetta svo mismunandi gróft. Þó eru barir verstir, en skást þar sem borðhald er. Sálir sem þekkjast Þórunn Maggý hefur skoðanir á öllum þáttum andlegra fræða, þ.á.m. endurholdgun. 13 L

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.