Morgunn - 01.06.1991, Qupperneq 39
Ed Gage:
Það sem ég lærði
UM ENDURHOLDGUN
í parííinu heima hjá Kalla um síðustu helgi
Eg veit nú svo sem ekki mikið um þessi endurholdgunar-
mál, en ég veit þó meira núna en ég gerði fyrir nokkrum
dögum síðan.
Það byrjaði þegar Kalli vinur minn bauð mér heim til sín í
óformlegt partí. Kalli er á kafi í nýöldinni, heilsufæði og
allskonar svoleiðis málum og uppfræðsla mín hófst óðara
og ég hafði hringt dyrabjöllunni.
Þegar Kalli opnaði dyrnar, íklæddur leðurpilsi og öðrum
útbúnaði rómversks hermanns, þá gat ég mér þess strax til
að á milli okkar hefði átt sér stað alvarleg tjáskipta bilun. En
þá birtist stúlka klædd í þunnar slæður með Egyptalegu
yfirbragði og veifaði gúmmísnák í kveðjuskyni og þá vissi
ég að það yrðu ekki bara hamborgarar á veröndinni.
/,Hæ granni," sagði Kalli. „Leyfðu mér að kynna þig fyrir
Eærustunni minni, henni Kleópötru. Ég er viss um að þú
hefur heyrt minnst á hana."
„Gaman að hitta þig," sagði ég.
„Sömuleiðis," svaraði hún og veifaði snákinum aftur.
„Hæ, þarna eru Napóleon og Jósefína við púnsskálina.
Hafið mig afsakaða á meðan ég fer og heilsa þeim."
Og í burtu dansaði hún, inn í setustofuna, sem virtist vera
full af sýnishornum úr kvikmynd um sögu heimsins.
„Heyrðu Kalli," byrjaði ég...
„Nei , nei," leiðrétti hann mig. „í kvöld heit égJúlíus Sesar."
„Heyrðu, aa..., hérna, Júlíus," sagði ég. „Ég hélt að þú
Eefðir sagt mér að þetta væri komdu-eins-og-þú-ert-partí."
Kalli-Júlíus Wó og leit á íþróttapeysuna mína og gallabux-
urnar.
37