Morgunn - 01.12.1996, Blaðsíða 31
Hún sagöi: „Það er veriö að refsa þér.
ekki komið skilaboðum í gegn, sama hversu mikið
maður reynir til þess að taka á móti þeim? Er það
áfellisdómur?
- Þú þarft að vera miðill til þess að taka á móti
skilaboðum og stundum tekst jafnvel miðlum ekki að
koma skilaboðum til allra. Fundargesturinn þarf að
vera á sömu bylgjulengd og miðillinn.
- Eiginmaður minn lést 42ja ára gamall. Ef ég lifi
það að verða áttræð verður hann þá líka áttræður
þegar við hittumst?
- Nei. Hann verður alveg eins og þú vilt sjá hann
og þú munt verða unglegri í útliti líka.
- Þegar fatlaður sonur minn deyr, mun hann verða
áfram fatlaður og getur hann munað líf sitt með okkur?
- Auðvitað mun hann muna eftir lífi sínu með ykk-
ur og hann mun losna við fötlun sina. Hann er sál, sem
hefur valið að koma aftur svona, til þess að hjálpa ykk-
ur að læra. Ég er sannfærð um að það þykir öllum
vænt um hann og að þið hafið lært mikið af honum.
- ]á, það höfum við gert.
- Þið hljótið að vera dásamlegt fólk til að eiga eitt
þessara sérstöku barna. Guð velur aðeins þá bestu.
- Getur maður, sem trúir ekki á líf eftir dauðann í
jarðlífinu, kornið skilaboðum í gegn eftir dauðann?
- Svo sannarlega. Enda hefur hann þá komist að
því sanna, ekki satt?
- Mun verða komið eins fram við hann og þá sem
trúðu?
- Auðvitað.
- Þegar ég dey, mun þá maðurinn minn taka á móti
mér?
- ]á, góða mín, þú munt sjá hann áður en þú yfir-
MORGUNN 29