Morgunn - 01.12.1996, Blaðsíða 75
C.W. Leadbeater:
Hugheimar
1. hluti
Yfirlit
Þegar við ráðumst í það vandaverk, að lýsa hér
nokkuð hugheimum, þá verður ef til vill einna
skárst að byrja á þvi, sem erfiðast er, og reyna að gera
nokkra grein fyrir því, hvernig þeir koma lærisvein-
um eða reglulegum dulspekinemenda fyrir sjónir, er
þeir eins og ljúkast upp fyrir honum í fyrsta skifti.
Það skal þegar tekið fram, að lýsingu þessari hlýtur
að verða að mörgu leyti ábótavant. Eg nota hér orð-
ið „lærisveinn“ af ásettu ráði, sökum þess, að það eru
litlar líkur til að maður, sem er ekki undir handleiðslu
einhvers meistara, sé fær um að fara með fullri með-
vitund inn á þetta sæluþrungna svið náttúrunnar og
geti svo munað glöggt og greinilega það, sem hann
hefur séð þar og athugað. Þaðan hefur og enginn
auðsveipur „andi“ komið til þess að spjalla við menn
um daginn og veginn fyrir munn þeirra manna, sem
hafa gert miðilsstarf sér að atvinnu. Þangað hefur og
enginn venjulegur dulsæismaður komið á meðan
hann hefur verið tengdur jarðneskum líkama. Þó hef-
ur það stundum borið við, að verulega góðir menn og
göfugir, hafa hafið sig til hugheima, er líkamir þeirra
morgunn 73