Morgunn - 01.12.1996, Blaðsíða 12
Efnið og andinn
Segja má að ég haí’i komið nokkuð víða við í félags-
málum. Ég var í stjórn Síjórnunarfélagsins í 17 ár
frá stofnári þess 1963, varaformaður í 13 ár og for-
maður í tvö, og í stjórn önnur 2 ár. Ég hafði mikinn
áhuga á framgangi þessa félagsskapar vegna mikil-
vægis hans fyrir atvinnulífið. Ég lærði stjórnunar-
fræði í framhaldsnámi í Stevens lnstitute á meðan ég
var að vinna í New York. Síðan starfaði ég í Verk-
fræðingafélaginu, var þar formaður frá 1970-1972.
Forseti Sálarrannsóknafélags íslands var ég fyrst
1966, en þar hef ég verið fimm sinnum forseti. í
stjórn International Spiritualist Federation frá 1978
til 1993 og síðan í Nordisk Spiritual Union frá 1979.
í bæjarstjórn Garðabæjar frá 1974-1978, en ég taldi
það vera skyldu mína að skila bæjarfélaginu mínu
einhverju en ég er búinn að búa þar í 37 ár. Svo fé-
lagsmálin hafa skipst á milli faglegra, félagslegra og
andlegra þátta.
Varðandi spurninguna um tímann sem í þetta hef-
ur farið þá getur hún verið afstæð. Ef vel gengur þá
gleymirðu tímanum. Og maður mælir hann ekki. En
ég tel að félagsmál hafi tekið svona 10-20% af mín-
um tíma, hverju sinni, á hinum ýmsu sviðum. Það tel
ég nauðsynlegt til þess bæði að læra og miðla þekk-
ingu og taka þátt í uppbyggingu umhverfisins sem þú
ert hluti af.
Varðandi andlegu málin þá kynnist ég þeim nokk-
uð snemma. Foreldrar mínir höfðu áhuga á bæði
guðspeki og sálarrannsóknum og voru þau félagar í
Guðspekifélaginu og Sálarrannsóknafélaginu. Til er
mynd af móður minni ófrískri af mér, þar sem hún er
stödd fyrir utan Guðspekifélagshúsið, ásamt hópi
10 MORGUNN
i