Morgunn


Morgunn - 01.12.1996, Page 68

Morgunn - 01.12.1996, Page 68
Eru kraftaverk kraftaverk? starfi huglækningamiðla og fyrirbænafólks. Flesl meinin, sem jarðlíkamann hrjá, eiga sér forsögu og hana oft á tíðum lengri en mannleg augu og lækna- vísindi fá greint. Allllestir hafa orðið heyrt um áruna, orkuhjúp þann er umlykur allar lifandi verur, þeim til verndar og viðurværis. Áran er aíleiðing. Útlit hennar, ástand og tilvera, byggist alfarið á því hvernig við erum í raun og veru, hvernig við hugsum, hvernig við lifum og hvernig viðhorf við mótum hjá okkur gagnvart líf- inu og aðstæðum þess. Mörg meinsemdin, sem okk- ur hrjáir getur því verið heimatilbúið vandamál, jafn- vægi skortir, við truflum orkustreymið og einkennin koma smám saman fram í efnislíkamanum. Slíkar or- sakir eru vinir okkar fyrir handan færir um að sjá, því tíðni orsakanna er á svipuðu sviði og þeir dvelja á. Og síðan, þegar fram er borin ósk um hjálp í viðkom- andi tilfelli, þá geta þeir lagfært sjálfa rót meinsins, truflað orkustreymi eða hnút og líkaminn nær að jafna sig með eðlilegum hætti. Og hvað myndi svona lækning hafa verið kölluð annað en kraftaverk hér á öldum áður. Auðvitað er ekki hægt að útskýra allar meinsemd- ir okkar með svo einföldum hætti sem hér er gert, en svona hygg ég að þær séu margar að grunni til. Og þar sem áran og orkustreymið er afleiðing gerða okk- ar, þá hljótum við að sjá hversu mikilvægt það er að rækta af alúð daglega, andlega garðinn sinn. Við erum svo fljót að gleyma okkur í stundaræsingi. Til eru þeir, sem halda að það sé þeim ávinningur í því, sem ég kalla refskák daglegs lífs, að gera öðrum óleik, að reyna að bregða fyrir þá fæti til þess að 66 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.