Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 21
L I N D I N
15
in bæði frá stofnun félagsins og allt til þess er þau fluttu
alfarin til Reykjavíkur.
Aðalhvatamaður mun hann og hafa verið að stofnun
Frímúrarastúkunnar Njálubræður hér í bænum og gegnt
þar umfangsmiklum störfum.
öllum þeim sem áttu því láni að fagna, að starfa með
honum, mun bera saman um, að betri samstarfsmann muni
vart vera hægt að hugsa sér. Minnist ég ekki þess, að nokk-
urn tíma skærist í odda milli hans og þeirra manna, sem
ég varð var við að hann starfaði með, að hvaða málefnum
sem unnið var.
Þessa samstarfs og samverustunda, munum við allir
minnast með ánægju og gleði. Og er við minnumst hans
á mörgum þessara stunda, getum við ekki varist þess, að
fram í hugann komi spakmæli hins mikla skjáldjöfurs, að:
Þar sem góðir menn fara, eru guðs vegir.
Af alhug færum við sóknarbörn hans og samstarfsmenn
honum alúðarþakkir okkar, fyrir allar þær minningaríku
samveru- og samstarfsstundir.
Það er því augljóst mál, að með embættisstörfum sín-
um, og öllum þeim margháttuðu félagsstörfum, sem hann
hafði með höndum og ég hefi nú nokkuð drepið hér á, auk
margra annara, hlaut hann að þekkja svo að segja hvert
mannsbarn í bænum, bæði ungt og gamalt. Og þar sem
mannkostir hans og framkoma öll var slík, sem ég áður
hefi lýst, var hann dáður, virtur og elskaður af sóknar-
börnum sínum, bæði háum og lágum; eins og berlega mun
hafa komið 1 ljós við andlát hans og útför, í bréfum og
símskeytum til ástvina hans, héðan frá ísafirði.
Heimili og heimilislíf þeirra hjóna var með ágætum. Frú