Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 28
22
L I N D I N
viljum verða í sannleika kristnir menn, þá verðum vér að
iðka af einlægni alúð og afsláttarlausri reglusemi þær að-
ferðir, sem að aldagamalli reynslu, eru öruggastar og enda
einar færar til aukins andlegs þroska að kristnum skilningi.
1 þessu er leyndardómur guðhræðslunnar fólginn, ekki
hvað sízt, því að það eru aðeins örfáir útvaldir, sem eru
kallaðir til lifandi og lífgefandi trúara skyndilega og að því
er virðist undirbúningslaust. Og fyrirfram megum vér a. m.
k. ekki ganga út frá því, að vér séum í þeim hópi. Vér verð-
um því að vinna að eflingu okkar andlega lífs, og þá fyrst,
þegar það t. d. að ganga til kirkju hvem messudag er orðin
sjálfsögð regla, þá fyrst veitir kirkjugangan oss þá innri
fyllingu, þann himneska auð, sem hún á að veita og getur
veitt. Og finnist þér presturinn þinn lélegur og lítið til hans
að sækja, þá minnstu þess, að aukin kirkjusókn er örugg-
asta leiðin til þess að efla hann í starfi.
Þorbergur Kristjánsson.
KVEÐIÐ I VESTMANNAEYJUM
Fagurt er um fold og haf,
fuglar kvaka í björgum.
Vorið, sem að guð oss gaf,
gleði veitir mörgum.
R. H.