Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 55
L I N D I N
49
Á SJÓMANNADAG
Prédikun eftir séra Porstein Björnsson.
Sjómenn góðir. Þau guðspjallaorð, sem hér fara á eftir
eru ekki valin með hliðsjón af hátíð ykkar í dag. Þau til-
heyra aðeins þessum drottins degi, er hátíðin hefur borið
upp á, að þessu sinni. En guðsorð á alls staðar heima, enda
þótt menn séu ekki úr því að velja, að eigin geðþótta. Þeirra
er að hlýða á það og meðtaka það í sín hjörtu. Orðin standa
í Lúkasarguðspjalli, 9. kap. versunum 59 til 62 og hljóða
þannig: „En við annan sagði hann: Fylg þú mér! En hann
mælti: Herra, leyf mér að fara og jarðar föður minn fyrst.
En hann sagði við hann: Lát hina dauðu jarða sína dauðu,
en far þú að boða guðsríki. En annar var og, er sagði: Ég
vii fylgja þér, herra, en leyf mér fyrst að fara og kveðja
þá, sem heima hjá mér eru. En Jesú sagði við hann: Eng-
inn, sem leggur hönd sína á plóginn og lítur aftur, er hæf-
ur til guðsríkis." Þannig hljóðar guðspjallsins heilögu orð.
Og sælir eru þeir, sem heyra guðs orð og varðveita það.
Amen.
í seinni tíma predikun hefur minna borið á strangleik trú-
ar en áður var. Meira hefur þar borið á hinum milda Kristi
en hinum stranga. Meir haldið fram og oftar bent á ljúf
og laðandi orð hans en ákveðnar og skilyrðislausar kröfur.
4