Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 110
104
L I N D I N
kirkja mikið og fallegt hús. Af munum Staðarkirkju má
nefna altaristöflu úr tré frá 1695 af kvöldmáltíðinni, en á
henni stendur: Foræret af afgangne Moren Sl. Frich Monse-
kis arfinge 1695. Þá er og ferðakaleikur og patína í tré-
hulstri, sem notað hefir verið, þegar presturinn tók sér ferð
á hendur til þess að þjónusta veikt fólk eða gamalmenni, sem
títt var í gamla daga.
í Hesteyrarkirkju voru aðeins nýir gripir, þar sem kirkj-
an á þeim stað var reist fyrst árið 1903, að ég hygg fyrir til-
stuðlan Norðmanna, sem höfðu þar bækistöð sína þá. Var
hún flutt tiltelgd frá Noregi.
1 henni var meðal annars mikil og fögur altaristafla, sem
sýnir það, er Jesús gekk á vatninu.
Ég vænti þess, að þessir gripir allir megi í framtíðinni,
þar til þeirra verður þörf á sínum fornu stöðum, hljóta
virðulegan og kirkjum helgaðan stað í hinu væntanlega
Byggðasafni Vestfjarða á Isafirði.
Héraðsfundur Norður-ísafjarðarprófastsdæmis var hald-
inn á ísafirði 9. september s.l., sem hófst með guðsþjónustu
í Isafjarðarkirkju kl. 2. Prédikaði séra Baldur Vilhelmsson,
settur prestur í Vatnsfirði. 1 sambandi við skýrslu prófasts
um það helzta, sem við hafði borið í kirkjumálum prófasts-
dæmisins, bar Páll Pálsson, hreppstjóri í Þúfum, fram þessa
tilllögu:
„Héraðsfundur Norður-lsafjarðarprófastsdæmis haldinn á
ísafirði 9. september 1956 beinir þeirri áskorun til biskups
landsins og kirkjumálastjómarinnar að þau taki til ræki-
legrar athugunar, á hvem hátt verði bættur og stutt að
viðhaldi og eflingu kirkjusöngs í landinu, einkum í þeim
sóknum, sem fólki hefir fækkað mjög, sem skapað hefir