Lindin - 01.01.1957, Blaðsíða 91
L I N D I N
85
eða Krist. Snúa sér til þeirra með bænir sínar eða syngja
þeim lof. Og þetta er gert í Guðs heilaga húsi. Máttur söngs-
ins er mikill, ef sungið er og leikið af heilum hug. Þessvegna
verður það að gerast „í anda og sannleika". Af þessum
ástæðum er það, að ég tel mikla nauðsyn að búa sem bezt
að kirkjuorganleikurunum. Og ég horfi fram í tímann kvíð-
andi þeirri tíð, er koma kann, að ekki sé hægt að messa í
kirkjum landsins vegna organleikaraleysis.
Nú síðustu árin eru að jafnaði nokkur prestaköll laus,
sem ekki er sótt um. Þetta er að vísu helzt í fámennu
prestaköllunum. En þrátt fyrir það veldur það áhyggjum,
að ekki skuli fást þangað prestar. En mun ekki enn minnka
áhugi prestanna fyrir að sækja um slík prestaköll, ef þau
eru organleikaralaus. Ég óttast, að í náinni framtíð geti það
komið fyrir, að einn eða annar prófastur verði að skrifa í
vísitazíubókina: „Kirkjan stendur á sínum stað, en prestur
er enginn í þessari sókn né heldur organleikari. Safnaðar-
starf fyrirfinnst því ekkert“. Það er af þessum ótta fyrst og
fremst, að ég tel nauðsyn að taka þetta mál til umræðu á
þjóðar vettvangi og leita að leiðum til úrbóta. Hér þarf nýtt
skipulag. En það hefi ég ekki gjörhugsað svo, að ég geti
skýrt frá því nú þegar. Vil ég nú biðja hvem þann, sem les
þessar hugleiðingar mínar, að hugsa málið og koma með til-
lögur, sem að þeirra hyggju gætu orðið til þess að leysa
þennan vanda. Ekki má gera ráð fyrir því, að ég sjái beztu
leiðina eða bezta skipulagið á framtíðarúrlausn þessa vanda-
máls. En þess vil ég geta, að ég hefi í huga sérstaklega fá-
mennu söfnuðina. Organleikarafélag Islands er líka að vinna
að því að fá bætt kjör meðlima sinna, sérstaklega í Reykja-
vík og Hafnarfirði. Og hvað organleikara ísafjarðarkirkju
snertir, þarf hann ekki að kvarta, því að sóknamefnd Isa-
6