Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 33
Jólasiðir 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Upp á síðkastið hafa fáarþjóðsagnapersónur tengd-ar jólunum verið jafn-umdeildar og Zwarte Piet,
eða Svarti-Pétur, þeirra Hollendinga.
Sjálfur er hann meinleysisgrey miðað
við hana Grýlu okkar sem stingur
óþekkum börnum í pokann sinn og
enginn veit hvað um þau verður. Eða
Krampus, hornótta djöfulinn, sem
ógnar austurrískum börnum með
ryðguðum keðjum og bjöllum og
Knecht Ruprecht, ófrýnilegan
skrögg, sem sums staðar í Þýskalandi
er martröð óþekkra barna. Ólíkt
þessum ískyggilegu fylgisveinum
jólasveinanna í hinum ýmsu löndum
er Svarti Pétur ljúfur og ávallt fylgi-
spakur heilögum Nikulási, eða Sin-
terklaas, eins og Hollendingar kalla
jólasveininn sinn.
Þótt Svarti-Pétur sé sérhollenskt
fyrirbæri getur hann ekki talist hol-
lenskur í húð og hár, því hann er
dökkur á brún og brá og í alla staði
afrískur útlits. Og þar liggur einmitt
hundurinn grafinn. Margir sjá nú
Svarta-Pétur einungis sem holdgerv-
ing meints kynþáttahaturs Hollend-
inga sem blundað hafi í þeim allar
götur síðan þeir voru nýlenduherrar í
ýmsum ríkjum Afríku og víðar.
Pólitísk rétthugsun
Leikritaskáldið Mark Walraven,
sem skrifaði og setti á svið ádeilu-
verkið Í skugga hins heilaga í Krater-
leikhúsinu í Amsterdam, er einn
þeirra. „Í sönglögum og ljóðum frá
því fyrir seinni heimsstyrjöldina er
hann oft kallaður þræll Sin-
terklaas og ekki fer á milli mála
að hann er tákn rasisma.
Svarti-Pétur er alltaf gerður
svolítið heimskur,
klaufalegur og illa
talandi á hollenska
tungu,“ segir hann,
en viðurkennir
að sjálfur hafi
hann leikið
Svarta-
Pétur og
málað sig svartan
í framan til að skemmta litlum börn-
um. „Ekki eftir að ég hóf að vinna
með blökkumönnum,“ bætir hann við.
Boðskapur leikritsins, sem hefur
fallið í góðan jarðveg hjá innflytj-
endum, er að Sinterklaas standi vel
fyrir sínu án Svarta Péturs.
Á spiegel.de/international kemur
fram að flestir Hollendingar séu á
öndverðum meiði. Þeim finnst Svarti-
Pétur ómissandi og af og frá að hann
spegli kynþáttahatur. Sumir taka
djúpt í árinni að segja gagnrýnendur
hreinlega heyja stríð gegn jólunum.
Umræðurnar hafa dregið dilk á
eftir sér. Mótmælum gegn Svarta-
Pétri, sem efna átti til í Eindoven í
september, var aflýst eftir að skipu-
leggjendur fengu morðhótanir. Í
Flæmingjahéraði í Belgíu, gripu íbú-
arnir, sem eru hollenskumælandi, til
þess ráðs að breyta hefðinni; þeir létu
Sinterklaas vera svartan á hörund, en
Svarta Pétur hvítan! Tiltækið þótti
mörgum benda til að þar á bæ hafi
menn eitthvað misskilið hugmyndina
um pólitíska rétthugsun.
Aðstoðarmaður Walraven er með
aðra uppástungu: Nefnilega að
Strumparnir leysi Svarta-Pétur af
hólmi, enda ekki síður vinsælir í Hol-
landi og Belgíu. Í ljósi pólitískrar
rétthugsunar kann sú hugmynd líka
að orka tvímælis.
Heilagur Nikulás og Santa Claus
Ólíkt ameríska jólasveininum,
Santa Claus, sem á heima á
norðurpólnum og ferðast um
heiminn á sleða, dregnum af
hreindýrum, býr Sin-
terklaas suður á
Spáni og siglir
með gufuskipi til
Hollands – ásamt
fylgisveini sínum
Svarta-Pétri.
Báðir eru jóla-
sveinarnir táknmynd-
ir heilags Nikulásar
biskups frá borginni
Mýru á suðvesturhluta
Litlu-Asíu, sem dó um
350, og síðar varð vernd-
ardýrlingur barna og sjómanna.
Hann er líka nefndur forfaðir al-
þjóðlega jólasveinsins.
Rauð kápa og húfa jólasveinsins
eru sagðar draga dám af biskupskápu
heilags Nikulásar. Hollenski jóla-
sveinninn, Sinterklaas, hefur varð-
veitt þann búning mun betur en af-
sprengi hans, ameríski jólasveinninn
Santa Claus. Sá hefur tekið töluverð-
um breytingum í aldanna rás, eða frá
því hann fluttist með Hollendingum
til Vesturheims á 17. öld, þar sem
þeir reistu borgina New Amsterdam,
sem síðar varð New York.
Á 19. öld þegar Vesturfararnir
tóku að senda ættingjum sínum í
gömlu heimalöndunum jólakort með
myndum af Santa Claus, brá þeim
heldur betur í brún. Heilagur Nikulás
hafði tekið stakkaskiptum svo um
munaði. Santa Claus var engu að síð-
ur aufúsugestur í Evrópu, þótt hol-
lensk börn hafi alltaf tekið Sinterkla-
as í hefðbundinni múnderingu heilags
Nikulásar fram yfir hann.
Ekki aðeins breyttist ásjóna og
nafn Sinterklaas þegar hann kom til
Bandaríkjanna heldur líka siðir hans
og venjur, t.d. tók hann upp á því að
gefa börnunum gjafir á jólunum en
ekki 5. desember eins og hollenski
jólasveinninn.
Aðstoðarmönnum Sinterklaas hef-
ur fjölgað töluvert í áranna rás og
kemur hann nú æ oftar fram með
fleiri en einum Svarta-Pétri. Sem
hlýtur að vera ávísun á margföld
vandræði – nema þeim verði breytt í
hvíta …? vjon@mbl.is
Verður Svarti-Pétur hvítur?
Holland Sinterklass ásamt hinum umdeilda Svarta Pétri.
Jólafylgisveinar Þjóðsagnapersónur tengdar jólunum er misfrýnilegar. Í Austurríki er Krampus, hornóttur djöfull, sem skelfir börn, hér á landi er Grýla, sem tekur óþægu börnin í pokann sinn og
enginn veit um afdrif þeirra. Svarti Pétur, aðstoðarmaður hollenska jólasveinsins, Sinterklaas, er þó gæskan uppmáluð, en þeir búa á Spáni og koma árlega með gufuskipi til Hollands.
Ljótur Knecht
Ruprecht er
ískyggilegur.
‘‘MARGIR SJÁ NÚSVARTA-PÉTUR EIN-UNGIS SEM HOLDGERV-ING MEINTS KYNÞÁTTA-
HATURS HOLLENDINGA.