Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 57

Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 57
Minningar 57 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008 ✝ Þorvaldína Þórð-ardóttir fæddist á Jökuldal í Norður- Múlasýslu hinn 8. mars 1905 (ranglega skráð 9.3. 1905). Hún andaðist á dval- arheimili aldraðra á Amager í Kaup- mannahöfn laug- ardaginn 22. nóv- ember síðastliðinn, þá rösklega 103 og ½ árs að aldri. Þorvaldína var dóttir hjónanna Stefaníu Jónsdóttur, f. 28. apríl 1876, d. 27. ágúst 1960, og Þórðar Þórðarsonar, f. 7. febr- úar 1863, d. 26. september 1928. Þau bjuggu fyrst á Arnórsstöðum á Jökuldal, en síðar (frá árinu 1907) á Gauksstöðum á Jökuldal. Var Stefanía dóttir Steinunnar Símonardóttur frá Dal í Lóni og Jóns Guðlaugssonar á Víðihóli (en Guðlaugur, faðir Jóns, var bróðir Þórðar á Kjarna í Eyjafirði). Var Þórður sonur Þórðar frá Sæv- arenda í Loðmundarfirði og Maríu Guttormsdóttur. Fyrri kona Þórðar var Þóra Margrét Þórðardóttir frá Skjöldólfsstöðum, en með henni átti Þórður fjögur börn, þar af tvö, sem komust upp, þau Þorfinn, f. 25.8. 1890, d. 5.12. 1965, og Þórdísi, f. 21.11. 1895, d. 13.9. 1924. Foreldrum Þorvaldínu, þeim Stefaníu og Þórði, varð 13 barna auðið. Fjögur barna þeirra, þau Steinunn María, Björg, Stefán og Benedikt, dóu í bernsku eða æsku. Þau alsystkin Þorvaldínu, sem upp komust, voru þau Skúli, sagnfræð- það, en hélt áfram að vera danskur ríkisborgari eftir fullveldisárið 1944. Jafnframt dönskunni talaði hún þó hreimlausa íslensku fram undir það síðasta. Þorvaldína var barnlaus og ein- hleyp alla ævi, og ekki vitað til, að hún hafi nokkurn tíma átt í sam- búð með öðrum. Hún bjó lengst af, eða í um 60 ár, í lítilli eins manns leiguíbúð, með fögru útsýni yfir stóra kanalinn í miðborg Kaup- mannahafnar. En þar sem hún ekki samlagaðist allskostar dönsku þjóðfélagi hefur einmanaleiki hlot- ið að sækja að henni á efri árum. Í fyrstu hafði hún þó félagsskap af systkinum sínum, þeim Skúla og Álfheiði, sem lengi bjuggu í Kaup- mannahöfn. En Skúli fluttist til Ís- lands rétt fyrir stríð, og Álfheiður nokkru síðar. Eftir það hafa per- sónuleg samskipti Þorvaldínu lík- lega mest verið við frændfólk á ferð eða í tímabundinni dvöl ytra, eða við stöku samstarfskonur danskar. Einnig hafði hún alltaf eitthvert samband við Helgu Skúladóttur bróðurdóttur sína, sem lést árið 1976, og við dóttur hennar Solvej, sem lést árið 2002. Báðar bjuggu þær í úthverfi við Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir ein- stæðingsskapinn hefur Þorvaldína þó átt mörg góð ár á eftirlauna- aldrinum, sem stóð yfir í rösk 36 og ½ ár. Lengi vel gat hún bjargað sér sjálf í íbúðinni og fékk hún þar fría heimilishjálp frá borginni. Þegar Þorvaldína náði 100 ára aldri flutti hún á dvalarheimili aldraðra, þar sem hún dvaldi síð- ustu rösku 3 og ½ ár ævinnar. Þorvaldína var jarðsungin á hefðbundinn hátt 28. nóvember síðastliðinn. Jarðsett var í Grøndals- lundkirkjugarði í Rødovre (út- hverfi við Kaupmannahöfn). Leiði hennar þar er nr. 506 í reit O. ingur, f. 21.6. 1900, d. 15.5. 1983, Þóra Mar- grét, húsmóðir, f. 21.6. 1900, d. 4.5. 1990, Vilhjálmur, bóndi, f. 8.9. 1901, d. 17.2. 1998, Sigsteinn, verkamaður, f. 30.9. 1902, d. 21.1. 1988, Þórður, bóndi, f. 25.8. 1903, d. 18.12. 1981, Jónas, bóndi, f. 30.9. 1907, d. 7.8. 1987, Álf- heiður, afgreiðslu- kona, f. 21.11. 1911, d. 4.3. 1960 og Flosi, f. 7.2. 1917, d. 15.9. 1978. Öll systk- in og mörg systkinabörn Þorvald- ínu eru látin. Sjö ára að aldri bauðst Þorvald- ínu að fara í fóstur til sæmilega efnaðra, barnlausra hjóna, búsettra í Vopnafirði. Þar varð hún að vinna, eins og algengt var á þeim tímum, að börn í sveitum þyrftu að gera. Í Vopnafirði dvaldi hún til 13 ára aldurs, en komst þá aftur til langþráðrar fjölskyldu sinnar á Gauksstöðum. Á ný þurfti hún að fara að heiman um 19 ára aldur, vegna þess að ala varð elstu börn Þóru systur hennar upp þar heima á smábýlinu. Þorvaldína vann þá fyrir sér í ýmsum vistum, m.a. í Reykjavík, og fékk góðan vitn- isburð. Á árunum 1932 til 1936, þegar kreppan mikla skall á, fór hún al- farin til Kaupmannahafnar. Þar vann hún fyrir sér aðallega við saumaskap hjá ýmsum vinnuveit- endum, m.a. lengi fyrir danska her- inn. Aldrei kom hún til Íslands eftir Árið 1979 fór ég að kynnast Þor- valdínu föðursystur minni. Áður átti ég örsjaldan leið um Kaup- mannahöfn. 74 ára var hún ótrú- lega vel á sig komin enda reglusöm alla ævi. Fíngerð var hún og kurt- eis og virtist stórborgarlífið ekki hafa svipt hana hrekkleysi lands- byggðarstúlkunnar. Ekki var hún fús til að hafa samband við fólk að fyrra bragði. Slíkt tekur þéttbýlis- fólk oft sem höfnun, en hlédrægni virðist hafa verið aðalástæðan. Bauð hún fólk velkomið, sem kom í heimsókn, hvort sem það var sam- mála henni eða ekki. Með ráðdeild hafði hún búið sér hlýlegt heimili í litlu íbúðinni. Nutu margir ætt- ingjar og tengdafólk góðs af og var ég þar meðtalin. Iðulega bauð hún þeim í notaleg kaffi- og matarboð. Haustið 2001 frétti hún, að ekki ætti Solvej, bróðurdóttir hennar, langt eftir ólifað. Þorvaldína, þá orðin 96 ára, hefur líklega talið, að enginn yrði nú eftir á staðnum, sem hún gæti treyst til að sjá um útför sína. Alls ekki vildi hún láta brenna lík sitt. En í Danmörku eru öll lík brennd, nema ef til vill að sérstakar ráðstafanir komi til. Þá gerðist það, að óskyld dönsk kona, sem enginn ættingjanna þekkti, fékk Þorvaldínu til að und- irrita nýja, óskilyrta erfðaskrá, konunni í vil. Þó var þar nefnd ósk Þorvaldínu um að verða jörðuð í kistu í vissum grafreit. Lumaði hún á umtalsverðu sparifé, sem að mestu var arfur eftir tvo bræður hennar. Við 100 ára afmælið kom allt þetta í ljós. Fór ég þá utan í 2 mánuði Þorvaldínu til hjálpar. Var hún veik og varð í kjölfarið að flytja á dvalarheimili. Ekki leist mér orðið á blikuna og bað ég hana að koma heldur til Íslands og búa hjá mér. (Hún hafði hresst við hvíldarinnlögn.) Hún harðneitaði. Á dvalarheimilinu varð henni skylt að fá sérstakan fjárhalds- mann, sem átti að vera opinber starfsmaður. Ári síðar kom ég ut- an aftur og frétti að sama konan, þ.e. nýi erfinginn, hefði útvegað sér (sjálfri) leyfi til að gegna einn- ig fjárhaldshlutverkinu. Var Þor- valdínu mjög brugðið. Ég reyndi að fá því breytt, en engu varð um þokað. Eftir þetta fékkst ekkert greitt úr sjóði Þorvaldínu, henni til hags- bóta. T.d. nánast ekkert til stand- setningar herbergisins, sem ekki var í umsjá stofnunarinnar. Ekk- ert heldur til greiðslu á viðbót- arhjálp. Aðeins húsaleigan, stofn- unargjaldið, og svo til ekkert umfram, var greitt með eftirlauna- tekjunum. Þegar á leið hefði Þor- valdína þurft miklu meiri umönnun en naumlega mönnuð stofnun veit- ir. Engin sjálfboðavinna var veitt, nema af mér og Anne Aagaard, tengdri fjölskyldunni. Síðustu 3 ár- in fór ég utan í 4 skipti, auk ferða 2005 og í nóv. 0́8, og aðstoðaði þá Þorvaldínu nánast daglega í 3 vik- ur í senn. Síðasta árið fór Anne til hennar á u.þ.b. 3 vikna fresti. Einnig leit Hrund frá íslenska söfnuðinum stundum inn til Þor- valdínu og útvegaði 2000 dk. í styrk, til að borga íslenskum manni fyrir að keyra hana í hjóla- stól stöku sinnum úti undir beru lofti. Önnur innlit voru örfá. Þökk sé þeim sem hjálpuðu. Er ég þakklát fyrir samveruna með Þorvaldínu frænku minni. Síðast kom ég að henni 4 stundum eftir andlátið. Þrengingum lífsins var lokið. Líney Skúladóttir. Þorvaldína Þórðardóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MAGNÚS GRÍMSSON, Felli, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum mánudaginn 22. desember kl. 13.00. Aðalbjörg Þorkelsdóttir, Magnea Magnúsdóttir, Hannes Haraldsson, Grímur Magnússon, María Ármannsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Jón Ragnar Sævarsson Hafdís Magnúsdóttir, Jón Ólafur Svansson, afabörn og langafabörn. ✝ Alúðarþakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SIGRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, Eyrarholti 4, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kleppsspítalans og nýrnadeildar Landspítalans fyrir góða umönnun. Sigurður Halldór Bjarnason, Ágústa Árnadóttir, Guðrún Magnea Gunnarsdóttir, Gunnar Sigurðsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðstandendur. ✝ Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og velvilja við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar og afa, GUNNARS MATTHÍASSONAR, Grenimel 25, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa Karitas hjúkrunarþjónustu fyrir frábæran stuðning og aðstoð. Theodóra Ólafsdóttir, Ingibjörg Þóra Gunnarsdóttir, Elín Kristín Gunnarsdóttir, Dóra Björk Guðjónsdóttir, Þorvaldur Hrafn Ingvason. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, HÓLMFRÍÐUR HELGADÓTTIR, Auðbrekku, Hörgárdal, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar fimmtudaginn 18. desember. Útförin fer fram að Möðruvöllum í Hörgárdal laugardaginn 27. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Bernharð Arnarson, Þórdís Þórisdóttir, Bergvin Þórir, Anna Ágústa, Ísak Óli og Karin Thelma Bernharðsbörn, Sigríður Ketilsdóttir, Helgi Sigurjónsson og systkini hinnar látnu. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. (V. Briem) Elsku pabbi og tengdapabbi. Nú er komið að leiðarlokum og þú búinn að fá hvíld frá mjög erf- iðum sjúkdómi. Það var mjög erfitt fyrir þig að þurfa að vera fangi í eigin líkama, bundinn í hjólastól, það átti ekki við þig, þú sem varst alltaf svo hraust- ur. Þú hafðir mikinn áhuga á garð- rækt og að vera úti í náttúrunni, tala nú ekki um að vera fyrir austan í sumarbústaðnum og hugsa um all- an gróðurinn þar, sem er orðinn stór og mikill skógur. Hesta- mennsku stundaðir þú á yngri árum Sigursteinn Heiðar Jónsson ✝ Sigursteinn Heið-ar Jónsson fædd- ist í Hafnarfirði 18. ágúst 1931. Hann lést á Sólvangi í Hafn- arfirði fimmtudaginn 28. nóvember síðast- liðinn og var jarð- sunginn frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði 8. desember. í u.þ.b. þrjá áratugi. Þú hafðir líka mikinn áhuga á veiði og áttir alltaf vissa veiðidaga, t.d. í Hlíðarvatni í fjöldamörg ár og á fleiri stöðum. Það eru svo ótal mörg minningabrot sem leita á, en við geymum þau í huga okkar. Minning um fallegan og yndisleg- an pabba lifir í hjarta okkar og söknuðurinn er mik- ill og sár. Nú færð þú að hitta Millu systur sem fór frá okkur alltof fljótt og við söknum svo mikið líka. Elsku pabbi og tengdapabbi, hvíldu í friði og góða ferð og guð blessi minningu þína. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Heiðdís og Vilhjálmur. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraðurar. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.