Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 59
Aldarminning 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Ólafía fæddist 25. júlí
1908 að Lónseyri í
Kaldalóni undir
Drangajökli við Ísa-
fjarðardjúp. Hún
hefði því orðið 100
ára þann 25. júlí sl.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Helga
Jensdóttir f. 28. maí
1871 í Bolungarvík og
Guðmundur Engil-
bertsson f. 21. októ-
ber 1865 á Lónseyri.
Ólafía var í hópi 13
systkina á Lónseyri,
en þar er náttúrufegurð gífurleg,
mikið og kjarngott beitiland, sjó-
bleikja, selveiði og hrognkelsaveiði
sem gerði Lónseyri eftirsóknar-
verða til búsetu. Þegar Ólafía var á
fyrsta ári, veiktist Guðmundur fað-
ir hennar. Þetta reið heimilinu nær
að fullu, en hjálparhendur voru á
lofti og litla stúlkan var send til
Gíslalínu Engilbertsdóttur föður-
systur sinnar að Selhúsum í
Skjaldfannardal í Nauteyrar-
hreppi. Þar dvaldi hún til ellefu ára
aldurs en þá brann á Selhúsum.
Gíslalína flutti þá að Skjaldfönn og
síðan að Laugalandi. Ólafía gekk í
skóla að Melgraseyri með jafnöldr-
um sínum, þar á meðal var Karl
Oluf Bang, stjúpsonur Sigvalda
Kaldalóns læknis og tónskálds,
sem þá bjó að Ármúla við Ísafjarð-
ardjúp.
Eftir brunann að Selhúsum lenti
litla stúlkan frá Lónseyri á hálf-
gerðum flækingi. Um 1920 var
henni komið fyrir að Efrabóli í
Langadal, en þar bjuggu þá síð-
ustu ábúendur ásamt sínu skyldu-
liði. Þarna voru torfhús, en Lóu
litlu leið þar vel hjá þessu fólki,
hún veiddi sjóbleikju úr Langa-
dalsánni bæði í net og með berum
höndum. Frá Efrabóli flutti fólkið
að Hríshóli í Reykhólasveit, síðan í
Lágadal í Nauteyrarhreppi, sem
mun hafa verið hæsta byggða ból
við Ísafjarðardjúp, rétt undir
Steingrímsfjarðarheiði. Síðan flutti
hún að Laugalandi, þá var hún í
Hraundal og aftur að Selhúsum,
sem höfðu verið endurbyggð eftir
brunann.
Um 18 ára aldur réð hún sig sem
fanggæsla í verbúð á vetrarvertíð í
Ólafía Guðmundsdóttir
Hnífsdal og vorvertíð
sem fanggæsla í ver-
búð að Hafnarhólma í
Steingrímsfirði.
Ólafía gekk tvo vetur
í Húsmæðraskólann
að Staðarfelli í Dala-
sýslu, þar voru með
henni Markúsína frá
Melgraseyri og Rósa
frá Skjaldfönn við
Djúp, síðar húsmóðir
að Ármúla. Skóla-
stjóri var Sigurborg
Kristjánsdóttir og
naut Lóa þessarar
menntunar alla ævi og var stolt af
að greiða skólakostnað sjálf. Að
námi loknu fékk hún vinnu á hót-
elinu í Borgarnesi, einnig var hún í
vist að Grímastöðum í Borgarfirði
og Görðum á Álftanesi. Að lokum
var hún um tíma stofustúlka hjá
Páli Ísólfssyni, organista og tón-
skáldi í Reykjavík.
Djúpið togaði hana til sín á ný,
1941 gerðist hún ráðskona að
Lónseyri hjá bræðrum sínum Jens
og Engilbert til 1945 er Engilbert
festi kaup á jörðinni Hallsstöðum í
Nauteyrarhreppi við Djúp. Hún
var þar ráðin sem ráðskona fyrsta
kastið, en var þar reyndar í 50 ár
hjá bróður sínum. 20. júní 1945
hófu þau búferlaflutninga, hann fór
á trillu inn Djúp, en hún fór á hest-
um með unglingspilt og rak tvær
kýr inn yfir Kaldalón og að Halls-
stöðum. Þar voru torfhús en Eng-
ilbert var lagtækur smiður og
byggði upp öll hús og þau mjög
samtaka um búskapinn. Þau höfðu
hjá sér fjölda barna um lengri og
skemmri tíma, en þrjá drengi ólu
þau upp alfarið, Rafn Vigfússon,
sem fylgdi jörðinni í kaupunum,
Gylfa Guðjónsson sem sendur var
til þeirra frá Ísafirði 1948 og Reyni
Snædal Magnússon, sem kom frá
Ísafirði 1960. Það var oft fjör á
Hallsstöðum yfir sumartímann,
þegar krakkaskarinn var í leikjum
eða við heyvinnu á túni. Lóa á
Hallsstöðum var ströng en góð
móðir. Hún var trúuð og ól upp sín
börn með kristilegu hugarfari og
lagði rækt við þau sem minna
máttu sín og höfðu orðið útundan
af einhverjum ástæðum, þetta
skynjuðu börnin og dá hana og
virða alla tíð.
Oft var hart unnið, en hún gaf
ávallt frí í miðri viku ef unnið var
um helgar, þá fórum við að veiða
eða í leiki. Staðarfellsdvöl Ólafíu
fylgdi henni, ávallt var á borðum
staðgóður og hollur matur. Engir
kæliskápar voru þá til, en hún var
ávallt tilbúin með heitan mat fyrir
menn ofan af heiðum, hún sauð
niður kjöt að hausti, hafði hangi-
kjöt og saltkjöt, súrmat í 200 lítra
eikartunnu, fisk með Djúpbátnum
frá Ísafirði, bakaði og hvatti Eng-
ilbert til veiða. – Hún hafði skiln-
ing á gangi lífsins, var undurgóð
öllum skepnum og talaði við þær
eins og börnin sín. Í sveitasam-
félagi gengur ýmislegt á og koma
upp árekstrar. Að Hallsstöðum
gátu allir komið og glaðst saman,
sem að öllu jöfnu gátu ekki bland-
að geði. Ef erfiðleikar steðjuðu að
heimili með einhverjum hætti
stuðlaði Ólafía að heilbrigðri lausn.
Engilbert andaðist í nóvember
1996 en Ólafía í febrúar 1997. Þar
hvarf á braut öðlingsfólk.
Gylfi Guðjónsson,
Mosfellsbæ.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Kæru vinir og vandamenn,
um leið og við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar
viljum við þakka ykkur fyrir allan þann stuðning og
umhyggju sem þið sýnduð okkur við andlát og
útför dóttur okkar,
KRISTÍNAR SIGRÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Æsufelli 6,
Reykjavík.
Einnig viljum við þakka allan þann hlýhug og
vináttu sem þið sýnduð okkur á erfiðum tímum.
Innilegar kveðjur,
Hanne Hintze, Halldór Sigurðsson
og fjölskylda.
✝
Okkar bestu þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
TRAUSTA GUÐJÓNSSONAR
frá Skaftafelli í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á
hjúkrunarheimilinu Grund.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Grund.
Ragnheiður Jónsdóttir,
Halldóra Traustadóttir, Einar Jónasson,
Guðjón Traustason, Kristín Erlendsdóttir,
Kornelíus Traustason, Elín Pálsdóttir,
Símon Eðvald Traustason, Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Sólveig Traustadóttir, Sigurður Wiium,
Vörður Leví Traustason, Ester K. Jacobsen,
G. Ingveldur Traustadóttir, Geir Jón Þórisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar
ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁGÚSTU PÉTURSDÓTTUR SNÆLAND.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund fyrir einstaka alúð við
umönnun hennar síðustu æviárin.
Pétur H. Snæland, Valgerður Kristjánsson,
Sveinn Snæland, Jónína M. Guðnadóttir,
Halldór Þ. Snæland, Ásta B. Benjamínsson,
Gunnar Snæland, Kristín E. Kristleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem hafa sýnt
okkur hlýhug, vináttu og samúð við fráfall ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
HARÐAR JÓNASSONAR
húsasmíðameistara og kennara,
Mánabraut 6,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir eru færðar því starfsfólki sem
annaðist hann á Landspítalanum við Hringbraut og
líknardeild Landspítalans Kópavogi.
Óskum ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar.
Sigrún Eliseusdóttir,
Ellert Ingi Harðarson, Oddný Jóna Þorsteinsdóttir,
Jónas Freyr Harðarson, Anna Soffía Reynisdóttir,
Hörður Már, Sigrún og Aðalbjörg Ellertsbörn,
Unnsteinn Freyr, Hjördís María og Dagbjört Ásta Jónasarbörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, bróður og afa,
ÞORGEIRS H. JÓNSSONAR,
Akurgerði 24,
Reykjavík.
Borghildur Þorgeirsdóttir, Arnar S. Andersen,
Jón H. Þorgeirsson, Jane H. Þorgeirsson,
Vilhjálmur Þorgeirsson, Sigrún Sigurbjörnsdóttir,
Þorgeir Þorgeirsson, Valdís S. Sveinsdóttir,
Ólafur Þorgeirsson, Gíslína Hákonardóttir,
Grímur Jónsson
og afabörn.
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram eða
grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word Co-
unt).
Minningargreinar