Árdís - 01.01.1944, Qupperneq 6

Árdís - 01.01.1944, Qupperneq 6
Viðbúnaður mót komanda degi Eftir séra Kristinn K. Olafson Það er heilbrigt að láta hugann stefna mót því ókomna. Að lifa í því liðna getur heillað, en úr því getur orðið lífsflótti eða tilhneiging til að sleppa frá því sem er. Að lifa aðeins í líðandi stund fráskilinn bæði því liðna og ókomna, er að slíta alt samhengi í lífinu og gefa sig á vald augnabliks áhrifa. Það á hvorki rætur né ávexti sem fullnægja. Það er lítilsvirðing á þýðingu og tilgangi lífsins. Milli öfganna er hin heilbrigða afstaða. Sagan á'að leggja lið á líðandi stund til þess betur verði haldið inn í framtíðina. En framtíðin er hið fyrirheitna land með ótakmörkuð- um tækifærum og möguleikum. Það er heilbrigt æskueinkenni að seilast eftir því sem framundan er. Þegar fyrir það tekur eru elli og afturfarar einkenni greinileg. Lífið hefir tapað krafti sínum. Sigurkraftur lífsins kemur fram í því ekki sízt hve ógjarnt mönnun- um er að tapa móði til lengdar. Það þyrmir yfir einstaklinga og þjóðir þannig um stundarsakir að í öll skjól virðist fokið og allar vonir horfnar. En áður en varir fer oft að votta fyrir nýjum vonum og nýrri viðleitni í áttina til viðreistnar. Sagan á þessa ótal dæmi. Frá svartnætti útkuln- aðra vona er oft skamt að dagrenningu endurfædds hugs og átaka að endurnýjuðu takmarki. Meðan ekki brestur hug er enginn að fullu bug- aður. Og vonin er þá fyrst dygð, eins og Gilbert Chesterton mun komast að orði, þegar ástæðurnar virðast með öllu vonlausar. Hin kristna lífskoðun á hér hlut að máli mjög ákveðið. Trúin er örugg eftirvænting þess sem maðurinn vonar. Og vonir þær er hin kristna lífskoðun vekur eru ekki lítilsigldar. Fyrst og fremst boðar krist- indómurinn það mjög ákveðið að menn geti orðið og eigi að verða nýir menn — endurfæddir, gjörbreyttir. Þessi gjörbreyting er svo hafin yfir hina venjulegu meðalmensku lífsins eins og líka yfir hátinda hins gjald- genga velsæmis, að ekki er aðeins að ræða um stigmun heldur eðlismun. “Verið þér því fullkomnir, eins og yðar himneski faðir er fullkominn”, eru eggjunarorð Krists í þessu sambandi. Þau eru tæmd af merkingu nema þau tákni opnar dyr til ótakmarkaðrar fullkomnunar fyrir mann- anna börn. Herhvöt hins kristna boðskapar er að leggja inn á þessa leið og hagnýta þau skilyrði, sem þar eru fyrir hendi. Sál getur orðið Páll, hinir bráðlyndu ‘þrumusynir’ geta orðið hæfustu verkfæri kærleika Guðs, og hinn ístöðulitli Pétur getur orðið staðfastur leiðtogi og píslarvottuv. 1 hverju mannslífi leynast möguleikar, sem guðleg skilyrði geta hafið og þroskað langt framyfir það er skammsýn mannleg gagnrýni hefir grun um. 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Árdís

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.