Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 13

Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 13
að þau eru bæði að heyja stríð. Þau hefðu ekki tilverurétt ef ekki væri fyrir einhverju barist. Fyrir liverju? Postulinn segir: “Berstu trúarinnar góðu baráttu'’ (1. Tím. 6: 12). Stríð yðar, stríð vort, er barátta fyrir kristindóminum, fengin oss í hendur af meistaranum sjálfum. Vér þurfum að heyja það stríð, gegn hinum illu öflum, með Guði, í anda bænar, í anda trúmensku og vísdóms. Frásagan, sem vér athugum, sýnir stríð og sigur. Jesús og lærisveinar hans voru eitt sinn á ferð í bygðunum fyrir norðan Gyðingaland. Mjög sjaldan fór hann út fyrir takmörk þess lands en í bygðum Týrusar og Sídonar var hann að þessu sinni, og þar gjörðist þessi frásaga. Vér athugum stríðið sem þar er háð. Stríð skapast oft af völdum manna en það er sérkennilegt við þessa sögu, að erfiðleikarnir sem þar koma í ljós, virðast koma frá Guði: Það er Guð-maðurinn, Jesús Kristur, sem sýnist leggja alla steinana í götuna til að hindra framgang kanversku konunnar. Hver var þessi kona? Hún tilheyrði heiðna fólkinu, sem bjó á þessu svæði, fyrir norðan Gyðingaland. Má vera, að hún hafi verið í hópi af- komanda Kananítanna, eins flokksins er bygði Gyðingaland áður en Gyðingarnir náðu því á sitt vald. Landið var nefnt Kanaansland eftir þeim. Þessi kona hafði samt frétt um máttarverk Jesú og eignast fulla sannfæringu fyrir guðdómlegum mætti hans. Nú átti hún bágt: dóttir hennar í skelfingum, haldin illum anda. Hún varð vör við för Jesú. Hví- lík dásemd að hann skyldi koma einmitt þegar hún átti svo bágt. Sjálf- sagt að leita hans. Hún hleypur til hans og ber upp fyrir honum kvein- stafi sína: “Miskunna ]ni mér, herra, sonur Davíðs, dóttir mín er þungt haldin.” Eg hygg, að hún hafi búist við skjótri úrlausn, gjört sér vonir um að dóttir hennar yrði samstundis heilbrigð, eða að minsta kosti fljót- lega. Þá kemur fyrsti erfiðleikinn: ekkert svar. Ekkert svar! “Skyldi sá ei heyra, sem eyrað hefir skapað,” Hvað segir íslenzka sálmaskáldið? “Hann heyrir stormsins hörpuslátt, hann heyrir barnsins andardrátt, hann heyrir sínum himni frá hvert hjartaslag þitt jörðu á.” Þó hefir mörgum manni fundist, að hann ekki fái neitt svar þegar hann hrópar til Guðs. Ástvinurinn liggur dauðvona. Með brennandi tilfinningum er Drottinn beðinn að bjarga, en ástvinurinn er kallaður burt. Var ekkert svar? Eitt augnablik á krossinum virðist Jesús sjálfur 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.