Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 17
einaða félagsskap. Þetta hefir hann gjört og verið kristindómsmálum
vorum til blessunar. Eg nefni aðeins tvær framkvæmdir félagsins: kristi-
legt fræðslustarf ungra kvenna út í sveitum meðal Vestur-lslendinga og
sumarnámsskeið fyrir unga fólkið sérstaklega í sambandi við sunnudags-
skólastarf, en þetta nægir til að sýna hvert stefnir með þennan mæta
félagsskap.
Félag þetta hefir nú keypt land fyrir sumarbúðir ætlaðar til þess
að hýsa hið kristilega námsskeið fyrir unga fólkið. Nokkru fé hefir verið
safnað í byggingarsjóð. Að þessu ætti fólk vort að hlynna af fremsta
megni. Guð gefi, að í þessum áningarstað unga fólksins verði ekki ein-
ungis byggingar úr timbri heldur einnig, og fyrst og framst, andlegt
musteri Drottins í sálum allra þeirra sem þar læra og starfa. “Ef Guð
byggir ekki húsið, erfiða smíðirnir til ónýtis.”
Gott er, í þessu sambandi, að minnast orða Páls postula:
Þér eruð þessvegna ekki framar aðkomumenn og útlendingar,
heldur eruð þér samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs, uppbygðir
á grundvelli postulanna og spámannanna, þar sem Kristur sjálfur er
hyrningarsteinn, sem hver bygging samtengist í, og vex, og verður heil-
agt musteri í Drotni, sem einnig þér eruð sambygðir í, til bústaðar Drott-
ins í andanum. (Gal. 2 : 19 — 22)
Spurt var: Er kanverska konan einnig til fyrinnyndar þessu kven-
þingi? Það finst mér. Mér finst framkoma hennar vera aðdáanleg. Hugsið
yður konu, í heiðnu landi með svona mikla aðdáun fyrir Jesú. Þær og
þeir, sem hafa haft enn meira tækifærri en hún til að þekkja Jesúm, ættu
að hafa enn meiri aðdáun fyrir honum. Jesús Kristur dáðist að henni:
“mikil er trú þín kona”. Vér getum öll lært af henni. Konur, minnist,
að hún:
(a) stefndi beint að marki;
(b) að hún lagði fram alt;
(c) að hún misti aldrei móðinn;
(d) að hún varð aldrei vond;
(e) að hún sameinaði dásamlega elsku og vitsmuni.
Þessar bendingar, sem hún ósjálfrátt með dæmi sínu gefur, eru yður
i félagsstarfi yðar, lærdómsríkar. Hún sýnir, hvernig unt er að stríða og
sigra.
En minnist, gleymið því aldrei, að “einn er leiðtoginn allra beztur”,
ein fyrirmyndin sem öllum mönnum er hin öruggasta: Frelsari \'or Jesús
Kristur. Hann bregst engum sem til hans leitar. Fylgið honum, sem
stríddi og sigraði framar öllum öðrum á jörðu.
Son Guðs ertu með sanni,
sonur Guðs, Jesús minn Amen
15