Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 26

Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 26
og leggja það á stál í staðinn. Hans fyrsta vél var notuð fyrir dráttar- vél til þess að létta byrðinni á búmanninum. En þó að undarlegt megi þykja þá var það ekki dráttarvélin heldur bifreiðin sem búmaðurinn ágirntist mest sökum þess að hún varð til þess að vinna bug á einangrun- inni og að greiða fyrir samgöngu við annað fólk. Það er ekki einungis dráttarvélin og bifreiðin sem umbreytt hafa lífinu heldur og margar aðrar uppfyndingar svo sem: ritsíminn, talsíminn, grammófónið, reið- hljólið, sláttuvélin og ótal önnur tæki. Fólk ferðast á lestum, gufuskipum og loftbátum, það kaupir föt, mat og efni sem búið er til í vélum. Að sumu leyti fer þetta of langt, svo langt að margir eru orðnir þrælar vél- anna fyrir misbrúkun á þeim að því leyti að þær hafa orsakað atvinnu- leysi. Allir þurfa að vinna en á sama tíma þurfa þeir að losast við þá þrælkun sem lamar bæði líkama og sál. Sérstaklega er það þýðingar- mikið fyrir konurnar vegna þess að þeirra vinna hefir verið minst metin og minst endurgoldin. Það er þá vandamálið að rata meðalveginn ef nokkur kostur er á því, að koma hlutunum þannig fyrir að allir geti notið frítíma og fegurðar, en ekki aðeins fáir á kostnað fjöldans. En til þess að koma því til leiðar þá er að varast of erfiða vinnu á annan bóginn og of mikið aðgerðaleysi á hinn bóginn, vegna þess að hvorugt er gott fyrir heilann. Af þessari ástæðu er það að margt af hæfileikafólkinu kemur frá miðstéttunum, þeim sem vinna í meðalhófi. En svo að þetta ásigkomulag nái til sem flestra þá er eina úrlausnin sú að nota vélar til þess að afkasta erfiðari verkum og losa alla fyrir þá iðju sem er síður lamandi. En eins og fyrir- komulagið er nú, þá ná ekki vélarnar þessum tilgangi. Fólkið er ennþá útþrælað, því hefir ekki gefist tími til þess að afkasta miklu á sviði listanna, og atvinnuleysi hefir verið mikið. Það sýnist vera að vélarnar hafi verið notaðar of mikið til þess að framleiða hluti í stórum stíl, hluti sem taka upp of mikið pláss og of mikinn tíma. En það sem verra er, þessum hlutum hefir ekki verið jafnað niður á alla. Margar konur hafa engin tæki til þess að gera vinnu þeirra léttari, þær hafa ekki tíma til þess að ferðast eða að sjá sjónleiki eða hreyfimyndir. Þær eru því ennþá því sem næst í þrælastéttinni. Vélarnar ættu að gefa tómstundir, en þær hafa aðeins framleitt hluti. En versta afleiðing vélamenningarinnar er eyðileggingin sem nú á sér stað í heiminum. Heimili og heilar þjóðir hafa eyðilagst. Konur og börn eru deydd jafnt hermönnum. Þessi misbrúkun vélanna stafar af of mikilli framleiðslu og af atvinnuleysi. Hjá þessum vanda mætti stýra ef vélarnar væru notaðar til þess að framkvæma erfiðustu vinnuna, fyrir flutning og til þess að framleiða þá hluti sem veita tómstundir. Hér er áskorun á konurnar að ráða fram úr því hvernig þessu skuli 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.