Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 8

Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 8
linga og það ætíð að sjálfum sér meðtöldum, er ætíð fyrsti og nauðsyn- legasti undirbúningur til þess að geta átt réttan þátt í hlutverkum kom- andi dags. Uppeldismálin og heilbrigð rækt við lífið af hálfu einstaklinga eru undirstöðuatriðin. Þar sem það bregst er öllu stofnað í voða. Þao er eitt mesta vandamál nútímans að svo mörg ungmenni fara á mis við nauðsynlegustu skilyrði til heilbrigðs manndóms. Siðferðileg og kristileg heimilisfræðsla er víða horfin. Sunnudagsskólar, sem einlagt ná til miklu færri en þyrfti, og hlutlausir dagskólar geta ekki bætt upp það, sem við þarf. 1 stórborgunum viða horfir til stórvandræða vegna þess hve stórt brot af æskulýðnum stefnir inn á leiðir glæpa og gáleysis, og það hefir verið margsýnt og sannað að þetta er lang alvarlegast þegar heimilis- áhrif vantar og siðferðileg og trúarleg áhrif og kensla er sama sem engin. En líka þar, sem ekki stefnir út í ákveðnasta hættu, er almennur skortur á því að æskan njóti þeirrar kenslu og leiðbeiningar í andlegum efnum er hún þarfnast. Að miklu leyti stendur þetta í sambandi við að eldri kynslóðin leggur víða hikandi og litla rækt við hina andlegu hlið lífsins. En enginn verður laginn á að rækta það hjá öðrum, sem hann sjálfur hefir ekki föst tök á. Hin bráðasta og brýnasta þörf nú til undirbúnings undir framtíðina á eftir styrjöldinni er að kirkjan og kristinn almenning- ur vakni verulega til meðvitundar um hve brýn er nauðsyn að hefja út- þýðingu kristindómsins í raunverulegu lífi undir nútíma ástæðum. Kristn- in þarf að finna til þess með sársauka hve brýn er þessi nauðsyn og leggja hönd á viðreisnarstarf í þessa átt með glaðri sigurvissu. Spekingurinn Steinmetz, sem lagði svo mikinn skerf til framfara á sviði raffræðinnar í samvinnu við Thomas Edison, sá framundan hina stærstu möguleika til siðferðilegrar og andlegrar framfarar og trúði því að lagt yrði inn á þá leið til sigurs og heilla. Slíkan stórhug þarf saintíðar kristnin að glæða. Sú kristni, sem ekki áræðir mikið, tapar sínum sigurmætti. Kristnir einstaklingar þurfa að vera betur útbúnir til sóknar og varnar í viðureign lífsins. Þeir þurfa bæði að þekkja og rækja lifandi kristindóm. En að þroska sjálfan sig er lífsins örðugasta hlutverk. Það krefst auðmýktar, svo maðurinn læri að þekkja sjálfan sig, réttilega, en líka áræðis til að leggja inn á ákveðna leið, hagnýta tækifærin og reynast trúr hækkandi hugsjón. Mikið er ráðgert í sambandi við hið ytra fyrir- komulag lífsins, einkum hvað snertir sambúð og samvinnu þjóðanna og eflingu réttlætisins. Þetta ber ekki að lítilsvirða, og skal að því vikið síðar. En eigi umbætur í fyrirkomulagi og ástæðum lífsins að geta hepn- ast, þurfa þær að byggjast á vaxandi þroska einstaklinganna. Að vera kristinn maður táknar svo oft fremur í hugum manna að halda takmarki er þeir telja sig hafa náð, en að sækja að takmarki, sem altaf er fram- undan. Guðrækni verður fremur að leggja rækt við það sem er, en að 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.