Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 25
í staðinn fyrir á ofbeldi; að koma í veg fyrir ill-vilja með því að stofna
svo mikinn og verulegan góðvilja að hann geti brúað komandi ár. Það
var vegna þess góð-vilja að öll vandræði sem oft sýndust óyfirstíganleg,
voru þó yfirstígin. Þennan góð-vilja hefir vantað á milli Frakklands og
Þýzkalands og þar af leiðandi áttu sér stað blóðugir bardagar út af landa-
mærum sem eru þó svo mikið styttri heldur en þau eru á milli Canada og
Bandaríkjanna.
Þetta dæmi sannar að lögmálið sem að gott heimili grundvallast á,
er það sama og veröldin ætti að hafa fyrir grundvöll. Án þess lögmáls
elsku og góðvilja þá er þetta hræðileg veröld eins og núverandi ófriður-
inn ber vitni um. Þjóðirnar samanstanda af fólki — mönnum og konum
og börnum eins og okknr. Það sem á við heimili okkar og þjóð, á einnig
við öll önnur heimili og allar aðrar þjóðir heimsins. Ein þjóð getur
kastað skugga á veröldina rétt eins og eitt óánægt barn getur skygt á
alt heimilið. I því tilfelli er nauðsynlegt að komast að orsökinni fyrir
þessari óánægju rétt eins og móðir gerir fyrir barn sitt. Allar þjóðir
hafa eitthvert tillag að greiða veröldinni ef þeim er gefið tækifæri
til þess. Það var einmitt einn kostur þjóðasambandsins —“League of
Nations”, sá að gefa smærri þjóðunum tækifæri til þess að þjóna fyrir
milligöngu sinna hæfustu manna, allri veröldinni. Þannig komst þetta
þjóðasamband nær því að vera þjóða-fjölskvlda heldur en nokkuð annað
sem reynt hefir verið. Þessum kosti má ekki gleyma þó að þetta samband
næði ekki tilgangi sínum. Jafnt því að meta hæfileika smærri og veikari
þjóðanna þá verður að veita þeim lið þegar þær eru kúgaðar af einhverju
vfirvaldinu.
J
Góðviljinn sem gæti þannig ríkt á meðal þjóðanna er það eina sem
getur ábyrgst þróun menningarinnar. En hvað er menning? Það er marg
sannað að ekki herlið né hervopn, heldur musteri og listaverk séu merki
þess að þjóð sé siðfáguð. Tökum til dæmis Egyptalands, Grikkland og
Kína, þeirra musteri, pyramídar, myndastyttur, innanhúsmunir og gull-
stáss voru merki siðfágaðra þjóða. En hver framkvæmdi þessi stórvirki?
Það voru miljónir þræla, þræla sem bygðn Mikla Vegginn í Kína, pýra-
mídana á Egyptalandi, o. s. f. Það voru þrælar sem gerðu þessa menn-
ingu mögulega. Mentuðu Kínarnir, Grikkirnir og Rómverjarnir gátu
notið mentunnar sinnar vegna þess að þeir höfðu þræla til þess að vinna
fyrir sig. Þessir þrælar voru sigraðir óvinir. \7inna þeirra var dýrkeypt,
kostaði svita þeirra og blóð. Er þá einungis um tvent að gera, annað-
hvort að halda áfram þessari þrælkun, eða þá að gefa upp hugmyndina
um betri og fullkomnari menningu? Hvorugt er aðlaðandi. En maður
nokkur, að nafni Henry Ford gaf bendingu um úrlausn á þessu vanda-
máli. Það var hans hugsjón að taka okið af herðum verkamannsins
23