Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 59
mínkað, unglinga afbrot mínkað, skólagánga aukist, en þegar vínbannið
hætti hafi alt farið í sama horfið aftur.
Ef maður gerir yfirlit yfir illu áhrifin sem leiða af víndrykkjunni
þá sér maður þetta: það eykur varmensku, er faðir afbrotanna, móðir
að allri svívirðing, bölvun allrar bölvunar, djöfull allrar vináttu og Guðs
versti óvinur.
I guðsbænum leggið þið hönd á þá stýrissveif, sem siglir Bakkus í
kaf, því hann tilheyrir því vonda í heiminum.
Flutt á þingi Bandalags Lút. Kvenna í Langruth,
8. júlí 1944.
Margret I. Bardal
Þingtíðindi
Þingið haldið í kirkju Herðubreiðar safnaðar að Langruth, Manitoba,
8.-9. júlí 1944.
(Athugasemd: — Skemtiskrá og skýrslur yfir embættismanna kosn-
ingar eru prentaðar í ensku fundargerðinni. Nöfn félaga og fulltrúa birt
í Lögbergi 20. júlí).
Forseti, Mrs. G. Thorleifson, setti þingið kl. 9.30 f. h. 8. júlí. Séra
Rúnólfur Marteinson las biblíukafla og flutti bæn. Mrs. J. Finnbogason
bauð gesti og erindreka velkomna fyrir hönd kvenfélags Herðubreiðar-
safnaðar. Kvennakór söng vísur ortar til B.L.K. af S. B. Benediktsyni.
Fjórir starfsfundir og tveir skemtifundir voru haldnir í kirkjunni.
Samkvæmt skýrslu kjörbréfanefndar höfðu konur þigréttindi sem
fylgir: 22 fulltiúar frá 15 félögum, 4 meðlimir stjórnarnefndar, 3 meðlimir
námsskeiðsnefndar og 3 prestskonur, þær Mrs. R. Marteinson, Mrs. B. B.
Jónsson og S. Ólafsson. Miss Lilja Guttormsson bað um inngöngu í
Bandalagið sem einstaklingsmeðlimur og var hún boðin velkomin.
Áður en þingstörf hófust, var minst þeirra félagssystra sem látist
höfðu á árinu: Guðrún Þorsteinsdóttir Ingimundson, Guðrún Björnson,
Ingibjörg Ósk Jónasson, Guðbjörg Ingimundson, Elin Petrea Þiðriks-
son, Jóhanna Ólafsson, Margret Bjarnason, Halldóra Bardal, Steinunn
Stefánsson, Fanny Anderson, Olga Vopni, Halldóra Bardal. Eftir að
forseti las nöfnin lutu allir höfði í þögulli bæn, og síðan las séra R.
Marteinsson hugnæma bæn.
57