Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 19

Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 19
þess mjög, að hlusta á hann spila . . . hún var augsýnilega elsk á músik og stóru,bláu augun hennar ljómuðu af gleði yfir fegurð sónötunnar. Um tíuleytið stóð húsráðandi upp frá hljóðfærinu og kom yfir að sófanum, þar sem við sátum. Hann spurði sessunaut minn, hvort hún vildi ekki syngja fyrir okkur, en hann myndi leika undir. Brást hún þegar vel við, stóð upp og gekk að hljóðfærinu með honum, en hann settist þar á ný. Hann leit nú í kringum sig og man eg, að hann brosti eins og með sjálfum sér meðan hann horfði á gestina, sem settu á sig svipinn, sem segir: “nú er að taka á þolinmæðinni”... þeim leiddist augsýnilega, að verða nú að hlusta á gamla konu, sem engin vissi deili á, en húsráðandi vildi sýna vinsemd ... og svo byrjaði hún að syngja ... hún söng bara Sshubert-söngva ... og alt í einu var það ekki gömul, óbreytt kona, sem stóð þarna og söng viðvaningslega, heldur glæsileg heimskona, sem kunni að syngja. Það var satt, að röddin var farin að bila, en meðferðin á hverju lagi, skilningur hennar á því sem hún fór með og listfengnin tók okkur traustataki. . . þeir segja, að erfiðast sé að syngja Schubert allra tónskálda, því hann heimti meiri kunnáttu og skilning en nokkurt annað tónskáld. Hún stóð ekki við hljóðfærið allan tímann, heldur gekk um stofuna, lagaði blóm í glösunum, settist á stól — og söng... en á meðan vafði hún okkur böndum listarinnar. — Eftir nokkra stund ætlaði hún að hætta að syngja, en við heimtuðum meira ... meira ! Fólkið í kring var nú ekki lengur með neinn yfirlætissvip — nú skein hrifning af hverju andliti, og þetta voru menn og konur, sem vit höfðu á listum . .. hún söng og tíminn leið svo ótrúlega fljótt... áður en varði var klukkan orðin tólf — þá hætti hún að syngja, álfheimarnir lokuðust fyrir okkur — við vorum komin úr álögunum. Dauðaþögn hafði ríkt meðan konan söng, en nú sagði einhver — alt of hátt — og augsýnilega af eintómri kurteisi við konunglegu óperusöng- konuna: “nú megið þér til að syngja fyrir okkur”... “nei, eftir þetta syng hvorki eg né nokkur annar”, svaraði hún, snéri sér að konunni, sem sungið hafði og, án þess að segja orð, faðmaði hún hana að sér með tárin í augunum. Síðar sagði húsráðandi mér, að kona þessi hefði einu sinni verið mesta Schubert-söngkona í heimi; hún ferðaðist um gervalla Norður- álfuna og hélt söngleika í heimsborgunum; alhr dáðust að henni, en einn var annmarkinn — hún söng bara þegar hún var upplögð. Þótt söng- leikar hennar væru auglýstir og allir að göngumiðar seldir, þá aflýsti hún öllu saman, ef henni fanst hún ekki vera upp á sitt bezta .. . og þetta var ástæðan fyrir því, að hún náði aldrei heimsfrægðinni... nú var hún gleymd í heimi söngsins, en okkur hafði auðnast að vera viðstödd þetta eina skifti, sem hún “kom aftur”. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.