Árdís - 01.01.1944, Page 27
komið til leiðar. Látum ekki það sem ætti að vera okkar sáluhjálp verða
eyðilegging okkar í staðinn!
Til þess að taka þessari áskorun þá verður konan að þroska sjálfs-
traust sitt og gera sér fulla grein fyrir því að starf hennar sem eiginkonu
og móður er jafnt áríðandi og starf karlmannsins, og hún verður að trúa
því, að reynsla hennar á heimilinu sé ómetanleg í starfi hennar á stærra
sviðinu í þjóðlífinu. Til þess að greiða veg hennar í þessum efnum þá
þarf lýðveldisstjórnin að breyta svo ásigkomulaginu á heimilisstörfum
hennar að hún hafi fleiri tómstundir.
Þó að þetta starf eiginkonu og móður sé áríðanda, þá ætti engin kona
að taka það að sér ef hún er ekki hneigð fyrir það. Ef hún er hneigð
fyrir vísindi, list, stjórnmál o. s. f., þá ætti hún að þroska hæfileika sína
í þá átt.
Hver kona sem beitir sér fyrir þjóðfélagsmálum eða styður þau að
einhverju leyti skal spyrja hvers við óskum okkur sjálf og krefjast svo
þess sama fyrir hvert mannsbarn í veröldinni. Konum er meðfædd þessi
lýðveldishugsjón og þær kannast við gildi einstaklingsins. Lýðveldi er
sú hugsjón að ríkið og allar stofnanir þess gildi fyrir einstaklinginn. Total-
itarian” hugmyndin er þveröfug — hún er sú, að einstæklingurinn hafi
ekkert gildi nema hvað ríkið snertir!
Konur eru tilfinninganæmari en menn, þær hafa því meiri með-
liðan með einstaklingnum, og þær mega ekki vera hræddar við að láta
þær tilfinningar í ljósi við hvert tækifæri. Veröldin þarfnast boðskapar
þeirra. Að flytja þann boðskap er þó ekki einungis skylda þeirra heldur
og alha kristinna manna alstaðar. Gildi einstaklingsins fyrir augliti Guðs
eins og Kristur opinberaði, er hinn sanni grundvöllur lýðveldisins. Það
hefir verið sagt að ef einungis einn maður á jörðunni hefði syndgað,
þá mundi Guði almáttugum hafa þótt það þess vert að krossfestast fyrir
hann. Þannig náði lýðveldishugsjónin hámarki sínu í lífi og kenningu
Krists. Hann kendi bræðralagshugsjónina sem undirstöðu lýðveldisins
og hann gaf veröldinni gullnu regluna fyrir bræðralagið: “Elska þú
náungann eins og sjálfan þig.” Ef allir reyndu að lifa eftir þessari reglu
þá mundi bræðralagshugsjónin rætast og lýðveldishugsjónin ná takmarki
sínu, þá mundi ríkja friður á jörðu. Þannig stafa frá Kristi friðargeislar
sem mega ekki útilokast frá nokkurri sál, frá nokkurri þjóð, friðargeislar
sem geta lýst veröldinni inn á friðarhöfnina. Kristur er því ljósvita-vörður
veraldarinnar.
Þið konur sem trúið á Krist, sem hafið vitnað um hann og voruð
búnar að deyja fyrir trúna á hann, nú er kominn tími til þess að vitna um
hann aftur. Þið eruð vel undirbúnar fyrir það starf, sem mæður og hús-
25