Árdís - 01.01.1944, Blaðsíða 41
year courses are good as far as they go, but it is felt that if the universities
had these students as undergraduate nurses as well, our product would
be finer.
McGill has started this year their degree course. Toronto and other
universities have had four to five-year courses for some years. We feel
we need it here too if Manitoba is going to liave well prepared nurses in
her health program under Health Insurance. We have to start now!
If we have the support of the people of Manitoba in obtaining the best
education, the nurses will see to it that they give the very best service
to the public.
(Synopsis of a lecture given in Langruth, July 8, 1944. — Editor)
MINNINGAR
FRÚ MARGRÉT BJARNASON
1868-1943
Ár er nú liðið síðan þessi merka kona dó, en Árdís hefir ekki fyr en
nú haft tækifæri til að minnast hinnar mætu konu og verður, því miður
ekki gert enn eins og vert væri; Árdís er alt of lítið rit fyrir ítarlegar
æfiminnigar.
Fæðingarstaður hennar er Hosfsós í Skagafirði, þar bjuggu þá for-
eldrar hennar, hjónin Árni Árnason og Sigríður Eggertsdóttir. En þegar
þessi dóttir þeirri var tveggja ára gömul fluttust þau til Sauðárkróks og
þar ólst hún upp. Bygði faðir hennar þar íveruhús og smiðju, því hann var
járnsmiður og stundaði hann þar iðn sína langa hríð með miklum dugn-
aði. Má hann teljast landnámsmaður, því hann bvggði fyrstur manna á
Sauðákróki, sem nú er fyrir löngu orðið allstórt og blómlegt þorp. Hefir
hún vafalaust fengið gott uppeldi og náði miklum og traustum andlegum
og líkamlegum þroska. Tvö ár gekk hún á kvennaskólann á Ytri-Ey. og
fékk þar meiri undurstöðu fræðslu til munns og handa, heldur en al-
mennt gerðist um ungar stúlku á þeim árum.
Árið 1892 fluttist hún til Vesurheims og settist að í Winnipeg og
stundaði sauma um sex ára skeið, en 1898 giftist hún Halldóri Bjarnasyni,
sem þá vann við verslun í Glenboro, Man. Hann er fæddur á Vestur-
landi, en frá barnæsku uppalinn í Skagafirði og máttu þau hjón því vel
39