Árdís - 01.01.1944, Side 48

Árdís - 01.01.1944, Side 48
“Tveir sterkir þættir í lífi Mrs. Bardal voru heimilið, með ástvinunum og kirkjan. Á heimilinu var hún manninum sínum fórnfús meðhjálp og börn- unum sínum umhyggjusöm og ástrík móðir. Hún var atorkusöm til starfa og veitti heimilinu á allan hátt góða umsjá. Hún var mjög gestrisin, veitti þeirn sem á heimilið komu allan fagn- að efth því sem unt var og hafði yndi af komu kunningjanna. Hún var spaugsöm og fyndin og naut sín vel þar sem gleði og vinarþel áttu mót. Hún var meðlimur í Fyrsta lút- erska söfnuði í Winnipeg að minsta kosti frá því hún giftist, og má vera áður. Þar átti hún andlegt heimili. Hugsun hennar var samtóna kristin- dóminum. Hún sótti kirkju stöðugt og starfaði í söfnuðinum af lífi og sál. Hún var ötul og áhugasöm félags kona í kvenfélagi safnaðarins. Kirkjan og starf hennar var yndi hennar og blessun, trúmenskan sívakandi og kærleikurinn sterkur og einlægur. Með sanni má segja, að geislarnir sem streymdu inn í sál hennar, frá heimili, ástvinum og kirkju, voru margir og fagrir, en þar voru einnig aðrir geislar. Auðug unaðaruppspretta var t. d. söngur. Hún hafði mikið yndi af hljómlist yfir höfuð, en sérstaklega söng. Hún haf.ði nautn af fögrum tónum í kirkjunni, á heimilinu, á samkomum, og í útvarpi. Hún hafði einnig mikinn unað af myndasýningum og leik- list. Hið sama verður sagt um ýmsar tegundir bóka, en sérstaklega þó um ljóðmæli. 1 samtali hafði hún hnyttin svör á reiðum höndum og þess vegna var oft hressandi að hitta hana. Allir, sem þekktu Halldóru, sakna hennar. Hún var að vísu búin að Ijúka dagsverki sínu og vinna það vel, en hún var svo góður félagi í hópi samferðafólksins, að menn finna til vöntunar þegar hún er ekki lengur í hópnum.” Við félagssystur hennar í kvenfélagi Fyrsta lút. safnaðar söknum hennar úr hópnum en þökkum henni jafnframt af lirærðum hjörtum alt hennar langa og góða starf. Frú Halldóra Bardal 46

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.