Árdís - 01.01.1944, Síða 58

Árdís - 01.01.1944, Síða 58
Nú fyrir nokkrum dögum varu send 3000 bréf út um alt fylkið með upplýsingar. Ef einhvern fýsir að kynnast innihaldi þeirra þarf hann ekki annað enn senda nafn sitt og utanáskrift og það varður sent honum. 1 einu bréfi sem kom til baka var ávísun upp á $50.00 frá konu. Sumir söfnuðir sendu $25.00 og aðrir smærri upphæðir. Ef okkur tækjist að vekja fólk af þessum afskiftaleysis svefni yrði hægra að vekja yfirvöldin til skyldu sinnar. Það fjölga altaf heimilunum sem verða fyrir áhrifum áfengis og afleiðingum þess, og nú ríður í garð ein hættulegasta afleiðing sem ætti að vekja alla til starfs á móti Bakkusi, það er kynsjúkdómurinn yfir 200,000 tilfelli í Canada. The Hon. J. L. Ralston, Minister of National Defence, skýrði frá því á þinginu að frá fyrsta janúar 1940 til 30. júní 1943 hefðu 35,036 sjúklingar, með þessa veiki, verið undir læknishendi, sem myndi að minstakosti kosta Canada $8,000,000 auk 697,259 vinnu- daga tapi á framleiðslu hernaðarins og hersins, það er sama sem eins mans vinna í 1911 ár, og svo ykkur festist það betur í minni, þá er það eins mans vinna frá því Kristur dó. Þeir sem eru ólæknandi eru yfir 30,000. Læknarnir hafa líka gefið það út að áfengi sé stæðsta orsökin til útbreiðslu þessarar voða veiki. Eins hátt og 60% — 90% megi rekja beint til drykkjuskapar, fólk missi vald á dómgreind sinni og kæruleysið verði yfirsterkara. Þetta er mál sem snertir alla þjóðina og þar sem vínið er aðalorsökin ættu allir að standa á verði, ekki síst kirkjusinnað fólk. Hvítabandið hélt sitt 58 ársþing í Winnipeg í júní s.l. Einn úr okkar stjórnarnefnd. var beðinn að halda þar aðalræðuna. Það var Professor Cragg (kennari við University of Manitoba). Hann sagði að kraftur þess illa nú á tímum í heiminum væri svo yfirgnæfandi að það væri of vaxið bindindis sinnuðu fólki eingöngu og því væri það skylda kirkjufólks að taka meiri þátt í bindindisstarfinu yfirleitt, og taka á sig meiri ábyrð en það hefði gert hingað til. Hann sagði að það hefði verið tekin atkvæði á ungmenna þingi sem hann hefði setið nýlega um það að biðja um algjört vínbann. Hann sagði líka að það væru kirkjur í Canada í dag sem létu þetta velferðarmál ekki snerta sig. Hann sagði að þær yrðu að vakna til skyldunnar í þessu bindindismáli, en ef ekki, myndi fólkið hætta að sinna þeim. Mrs. G. Knight forseti Hvítabandsins í Canada sagði að okkar leið- togar og stjórnendur í söfnuðum yfirleitt, sneiddu hjá aðalefninu þegar kæmi að bindindi eða vínbanni. Hún sagði ennfremur að vaxandi vand- ræði með unglinga afbrot, væru á ábyrð hæðstu yfirvalda þjóðarinnar. Mrs. Knight las úr bók sem heitir “Facts” (Sannleikur) og sagði að sann- leikurinn væri sá, að vínbanns tímabilið hefði sannað að vínnautn hefði 56

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.