Morgunblaðið - 19.04.2009, Page 10

Morgunblaðið - 19.04.2009, Page 10
10 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Þegar ég var kornungur blaðamaður á Tímanum var ég send norður að Laugum í Þingeyjarsýslu til þess að skrifa um aðalfund Stéttarsambands bænda. Mig minnir að þetta hafi verið haustið 1981. Fundurinn stóð að mig minnir í eina þrjá daga, frá morgni til kvölds og ræður bændanna voru óteljandi margar og sumar óbærilega langar og leiðinlegar. Þegar ég leyfði mér að kvarta við nærstadda um lengd, fjölda og lítið skemmtanagildi ræðnanna, sagði einn góður bóndi við mig, heldur háðskur á svip: „Já, Agnes mín. Lýðræðið þreytir rassgatið!“ Þessi eldgamla saga hefur rifjast upp fyrir mér undanfarna daga, við það eitt að fylgjast með póli- tískum umræðum í sjónvarpi og útvarpi. Það þarf ákveðinn þroska til þess að geta ástundað lýðræðisleg vinnubrögð, um það hljótum við flest að vera sammála. Við þurfum að bera virðingu fyrir skoðunum annarra, sætta okkur við leikreglur lýðræðisins, að nú ekki sé talað um landslög. Þetta virðast flestir frambjóðendur gera, hvar í flokki sem þeir standa, með einni und- antekningu þó. Undantekningin er Ástþór Magn- ússon, sem fótumtreður allar leikreglur, gefur skít í landslög, svívirðir allt og alla, er með dóna- skap, yfirgang, hávaða, belging, hroka og mann- fyrirlitningu að vopni, hvenær sem hann opnar munninn, sem hefur því miður verið allt of oft á opinberum vettvangi undanfarna daga. Það sem mér finnst vera hróplegt er að þessi maður hafi stofnað og sé í fyrirsvari fyrir hreyf- ingu sem heitir hvorki meira né minna en Lýð- ræðishreyfingin. Þvílík öfugmæli. Á þriðjudagskvöld sat Ástþór Magnússon í beinni útsendingu Sjónvarpsins sem efsti maður á lista Reykjavíkurkjördæmis norður, ásamt efstu mönnum annarra lista í kjördæminu. Ástþór varð sér til skammar, með hrópum, dylgjum, fúkyrðum og sjálfsupphafningu. Hann virti engan og ekkert, hvorki áheyrendur í sal, þáttastjórnendur, þær Jóhönnu Vigdísi og Þóru, aðra frambjóðendur né sjónvarpsáhorfendur heima í stofu og hefur væntanlega uppskorið í samræmi við eigin framkomu. Þráinn Bertelsson, efsti maður á lista Borg- arahreyfingarinnar, átti afar bágt með að sýna hvaða erindi hann á í pólitík. Hann sagði að ef fólki liði ekki óbærilega, þá myndi atvinnu- ástandið á Íslandi lagast af sjálfu sér! Ekki var það öllu gáfulegra sem kom úr munni efsta manns á lista Frjálslynda flokksins, Karls Matthíassonar, fall- kandídats úr prófkjöri Samfylking- arinnar frá því fyrir nokkrum vikum: Hann sagði að bróðir sinn hefði hafið lík- kistusmíðar, þegar harðna tók á dalnum. Líkkistusmíð var hans lausn á atvinnuþref- inu! Það fór ekkert á milli mála í þessari útsendingu að það voru tveir frambjóðendur sem báru af eins og gull af eiri og var raunar ótrúlegur samhljómur í málflutningi þeirra á ýmsum sviðum. Þetta voru þau Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og efsti maður á lista Vinstri grænna, og Illugi Gunnarsson, alþingismaður og efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Að vísu sagðist Katr- ín vilja hækka skatta og lækka laun án þess að skýra hvernig slík hagfræði á að geta gengið upp. Á miðvikudagseftirmiðdag hóf Ástþór Magn- ússon að „skemmta“ landslýð á nýjan leik, er hann var gestur í síðdegisútvarpi Rásar 2. Hann nánast ruddi sér leið að hljóðnemanum, hrifsaði til sín völdin úr höndum þáttastjórnanda, lét fúkyrðin dynja á honum um hann og hans „ritskoðaða fjöl- miðil, Ríkisútvarpið“ og lýsti því yfir að hann ætl- aði að lesa frétt fyrir landsmenn í beinni útsend- ingu sem fréttastofan hefði fyrr um daginn neitað að birta. „Ég ætla að lesa þessa frétt og þú þarft þá að henda mér út með valdi ef ég fæ ekki að lesa þessa frétt í þessum ritskoðaða fjölmiðli og heyrið þið nú Íslendingar,“ nánast öskraði Ástþór í hljóð- nemann, stjórnlaus af ofstæki, frekju og yfirgangi og komst upp með það! „Útrásarvíkingar reyna að stöðva framboð Lýðræðishreyfingarinnar“ var upphaf „fréttarinnar“. Það er ég viss um að ég er ekki ein um að velta því fyrir mér hvort Ástþór Magnússon sé end- anlega genginn af göflunum. Ég velti því fyrir mér, hvers vegna frekja hans, yfirgangur og hroki á að bitna á okkur Íslendingum, sem borgum jú nefskatt, óheyrilega háan, til þess að fá að hlýða á þennan fjölmiðil sem er í eigu okkar allra. Ég full- yrði að maður eins og Ástþór á ekkert erindi í stjórnmál; hann kemur óorði á lýðræðið með framkomu sinni og þess vegna var það svo einkar ánægjulegt að yfirkjörstjórnir Reykjavíkur- kjördæmanna úrskurðuðu framboðslista Lýðræð- ishreyfingarinnar ógilda. En Adam var ekki lengi í Paradís. Landskjörstjórn úrskurðaði um miðjan dag í fyrradag að listar P-lista, Lýðræðishreyfing- arinnar í Reykjavíkurkjördæmum norður og suð- ur, væru gildir. Lýðræðishreyfingin býður því fram lista í öllum sex kjördæmum landsins og við sitjum uppi með Ástþór gapuxa gapandi í eina viku enn. agnes@mbl.is Agnes segir… Stjórnlaus af frekju Ég fullyrði að maður eins og Ástþór á ekkert erindi í stjórnmál. Að koma óorði á lýðræðið Þráinn BertelssonKarl V. Matthíasson Landbúnaðarstefna Vinstrigrænna, sem samþykkt var á landsfundi fyrir skemmstu, hefur ekki vakið verðskuldaða athygli.     Vinstri græn vilja auðvitað aukastyrki til landbúnaðarins. Þau vilja til dæmis auka niðurgreiðslur á rafmagni svo hægt sé að rækta meira grænmeti í gróðurhúsum.     Og þótt VG sé ámóti stóriðju, vill flokkurinn stefna að byggingu áburðarverk- smiðju „hið fyrsta“ og koma í veg fyrir að áburðarnotkun dragist saman. Ætli það passi við sjálfbæru um- hverfisstefnuna?     Langáhugaverðasti parturinnsnýr að kornrækt: „Efla skal rannsóknir og þróun á hveitirækt á Íslandi og stefna að því að landið verði sjálfbært hvað hveiti varðar eins skjótt og auðið er,“ segir VG.     Íslenzku hveitihaugarnir kallaauðvitað á nýja aðstöðu: „Auka þarf kornbirgðir landsins og stefnt skal að byggingu birgðastöðva fyr- ir korn,“ segja vinstri græn.     Það mætti halda að VG byggistvið kjarnorkustríði. Og þó – því að flokkurinn ætlar að friðlýsa Ís- land fyrir kjarnorkuvopnum.     Hvað ætli það muni kosta skatt-greiðendur að gera Ísland sjálfbært um hveiti, sem ræktað er með mun hagkvæmari hætti í ótal hlýrri löndum? Eða að byggja korn- turnana?     Átta 28% kjósenda, sem segjaststyðja VG í skoðanakönnunum, sig á því upp á hvers konar bull þeir eru að skrifa? Fróðleikskorn úr stefnu VG Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 6 skýjað Lúxemborg 8 skýjað Algarve 13 skýjað Bolungarvík 3 alskýjað Brussel 9 þoka Madríd 5 þoka Akureyri 3 skýjað Dublin 6 léttskýjað Barcelona 9 léttskýjað Egilsstaðir 5 skýjað Glasgow 6 skýjað Mallorca 7 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 5 alskýjað London 6 heiðskírt Róm 10 heiðskírt Nuuk -2 heiðskírt París 8 þoka Aþena 14 heiðskírt Þórshöfn 5 skýjað Amsterdam 8 heiðskírt Winnipeg 0 alskýjað Ósló 3 heiðskírt Hamborg 7 heiðskírt Montreal 10 alskýjað Kaupmannahöfn 9 heiðskírt Berlín 8 skúrir New York 14 heiðskírt Stokkhólmur 3 léttskýjað Vín 11 léttskýjað Chicago 10 léttskýjað Helsinki 0 léttskýjað Moskva 4 skúrir Orlando 17 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR 19. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 1.52 2,8 8.29 1,4 14.35 2,7 20.50 1,5 5:41 21:14 ÍSAFJÖRÐUR 3.55 1,5 10.30 0,6 16.38 1,3 22.51 0,7 5:35 21:30 SIGLUFJÖRÐUR 5.49 1,0 12.27 0,4 19.01 0,9 5:18 21:13 DJÚPIVOGUR 5.13 0,9 11.22 1,4 17.34 0,8 5:08 20:46 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á mánudag Allhvöss eða hvöss sunnanátt og rigning, en hægari vindur og þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 4 til 10 stig. Á þriðjudag Suðvestan 5-10 m/s og skúrir, en þurrt og bjart austanlands. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag Hvöss suðaustanátt með rign- ingu víða um land og 4 til 9 stiga hita. Á fimmtudag Lítur út fyrir austlæga átt með úrkomu í flestum landshlutum. Fremur milt í veðri. Á föstudag Líklega skammvinn norðanátt. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvessir víða í dag. Suðaustan 13-20 m/s á Suðvestur- og Vesturlandi, annars 8-13 m/s. Bætir í úrkomu sunnanlands seinnipartinn. Hiti 4 til 14 stig.                                                              ! "      #$%                 &         '     (     )*+,,# )*#-,#                 !"   # $  %   &'      " '         .  ' /      (   ) * + ,-  (+%  "  -+ &* .  ,  000  @

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.